ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Akranes fyrr og nú
Prenta vefsíðu

Akranes fyrr og nú

Saga byggðar á Akranesi nær allt aftur til landnáms. Þar námu Írar land á fyrstu árum Íslandsbyggðar um eða eftir 880. Ysti tangi nessins hefur frá fornu fari verið kallaður Skagi og síðar Skipaskagi þegar útgerð hófst á Skaga. Nafnið Akranes er dregið af kornrækt og akuryrkju á hinu frjósama landi sem er á Akranesi og við Akranes kenna Akurnesingar sig, þó í seinni tíð hafi nafngiftin Skagamaður verið þekktari, einkum vegna íþróttaáhuga Akurnesinga og ekki síst afreka á knattspyrnuvellinum um áratugi.

Akranes er bær í mikilli sókn. Íbúum fjölgar stöðugt og stöðug uppbygging á sér stað á flestum sviðum. Akranes hefur því vaxið vel og dafnað á þessum ríflega 1100 árum frá því að frændur okkar Írar námu hér land. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008