ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Menning og listir :: Listaverkasafn
Prenta vefsíðu

Listaverkasafn Akraneskaupstaðar

Listaverkasafn Akraneskaupstaðar telur vel á fjórða hundruð verka af ýmsu tagi; höggmyndir, málverk, textílverk, útilistaverk og skúlptúrar svo dæmi séu tekin. Elstu verkin í eigu safnsins eru frá því um miðja síðustu öld en upphaf listaverkasafnins má rekja til listaverkagjafar Fríðu Proppé, apótekara á Akranesi. Á sínum tíma var stofnaður sérstakur menningarsjóður Akraness sem m.a. keypti verk til safnsins. Í gegnum tíðina hefur safninu áskotnast fjöldi verka. Listamenn hafa gefið safninu verk í tengslum við sýningar og þá hafa bæjaryfirvöld á hverjum tíma keypt verk til safnsins.

Listaverk í eigu Akraneskaupstaðar má sjá víða um bæinn. Fjölmörg útilistaverk prýða bæinn og víða hanga myndir í opinberum stofnunum s.s. í skólum og í Stjórnsýsluhúsinu. Stöðugt er unnið að flokkun og skráningu listaverka í eigu Akraneskaupstaðar og fer sú vinna fram í listasetrinu Kirkjuhvoli, enda berast safninu fjöldi verka á hverju ári. Stefnt er að því að gefa fólki kost á að skoða listaverkin hér á vef Akraneskaupstaðar ásamt upplýsingum um verkin og höfunda þeirra. Reglulega verða síðan haldnar sýningar á verkum í eigu bæjarins.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008