Menning í skólum bæjarins
Skólarnir á Akranesi taka afar virkan þátt í menningarlífi bæjarins en strax í leikskóla er börnunum veittur mikilvægur menningarlegur bakgrunnur sem þau búa að alla ævi. Leikskólarnir taka oft virkan þátt í margvíslegri menningarstarfsemi í bænum, m.a. viðburðum eins og Hátíð hafsins og Írskum dögum. Þá taka leikskólarnir alltaf þátt í dagskrá Vökudaga og setja skemmtilegan svip á þá ágætu hátíð.
Í grunnskólum bæjarins er menningarstarfinu haldið áfram, ekki síst á sviði tónlistar og leiklistar en auk þess gefst börnum á Akranesi kostur á fjölbreyttum möguleikum til sköpunar í skólanum sínum. Báðir grunnskólar bæjarins leggja mikið í árshátíðir sínar og setja auk þess oft upp metnaðarfull leikrit og söngleiki. Þá er eftir því tekið hve virk þátttaka barna og unglinga á Akranesi er í Lestrarkeppni grunnskólanna og fleiri slíkum viðburðum. Þá taka skólarnir þátt í ýmsum viðburðum í bæjarlífinu s.s. menningarhátíðinni Vökudögum.
Innan veggja Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) fer einnig fram fjölbreytt menningarstarf. Þar er afar öflugt tónlistarlíf og fjöldi hljómsveita starfandi á hverjum tíma. Innan skólans starfar einnig öflugur leiklistarklúbbur. Nánari upplýsingar um skólann og félagsstarfið þar má sjá á vef skólans, www.fva.is.
Fjöldi nemenda stundar síðan nám við Tónlistarskólann á Akranesi, en þar er boðið upp á fjölbreytt nám við bestu aðstæður, en skólinn tók í notkun nýtt og afar vel búið húsnæði á haustdögum árið 2007.