Uppheimar
Útgáfufyrirtækið Uppheimar ehf var stofnað í ársbyrjun 2001, þann 11. janúar nánar tiltekið, og var upphaflega í eigu Kristjáns Kristjánssonar og Margrétar Þorvaldsdóttur. Meginverkefni fyrstu árin var útgáfa á Árbók Akurnesinga en samhliða var boðið upp á alhliða útgáfuþjónustu - allt frá einföldum bæklingum og fréttabréfum upp í bækur og blöð til dreifingar á landsvísu. Frá og með hausti 2005 var lögð meiri áhersla á bókaútgáfu og hefur sá þáttur útgáfunnar vaxið hratt. 1. júlí 2007 gekk Aðalsteinn S. Sigfússon til liðs við Kristján og Margréti og eignaðist hlut í fyrirtækinu. Aðalsteinn hefur yfirumsjón með hönnun og útgáfuþjónustu Uppheima, ásamt markaðsmálum.
Á vefsíðu Uppheima, www.uppheimar.is, má fá nánari upplýsingar um fyrirtækið.