ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Söfn og sýningar :: Glöggar systur
Prenta vefsíðu

Glöggar systur

Við Bakkatún á Akranesi er rekin n.k. menningarsmiðja sem heitir því forvitnilega nafni "Glöggar systur”. Það eru systurnar Jóhanna og Margrét Oddný Leópolds- og Olgudætur sem eru hinar  glöggu systur en þær hafa svo fengið til liðs við sig konur úr ýmsum áttum til listsköpunar og sýningahalds - eða eins og segir á vef þeirra systra:  “Þær bardúsa hitt og þetta varðandi menningu, listir, hönnun, jafnréttismál, félagsmál og heilbrigðismál. Jóhanna er stóra systirin sem ræður öllu.  Margrét er litla systirin sem gerir það sem henni er sagt.  Oftast.”

Undanfarin ár hafa þær m.a. haldið sýningar í tilefni af Írskum dögum á Akranesi og hafa þessar sýningar vakið verðskuldaða athygli. Nánari upplýsingar um starf Glöggra systra má finna á vef þeirra, www.leopold.is/gloggarsystur/.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008