ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Söfn og sýningar :: Safnasvæðið að Görðum
Prenta vefsíðu

Safnasvæðið að Görðum

Safnasvæðið að Görðum hefur á undanförnum árum skipað sér verðugan sess sem eitt helsta aðdráttarafl Akraness, enda mikil upplifun að koma þangað, jafnvel fyrir þá sem hafa annars ekkert gaman af söfnum. Í Byggðasafninu að Görðum er sögu byggðar, atvinnu og mannlífs sunnan Skarðsheiðar gerð góð skil. Þar er m.a. geymd hin einstaka "Hagamús" en fólk þarf að fara á safnið til að fræðast betur um þetta grunsamlega "spendýr". Á undanförnum árum hafa gömul hús sem tengjast sögu Akraness á einhvern hátt verið flutt á Safnasvæðið og gerð þar upp til minningar um liðna tíma. Þar má einnig finna vísi að bátasafni og þar er Íslands eini kútter, kútter Sigurfari, varðveittur.

Gamli prestsbústaðurinn að Görðum eða Garðahúsið (frá 1876) er fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið af sinni gerð sem byggt var hérlendis og jafnvel á Norðurlöndum.  Í húsunum fer reglulega fram lifandi dagskrá og má þar sjá handverksfólk að störfum.  Á hverju sumri er haldin sérstök viðburðaveisla með markaðsdögum, fiskiveislum, kleinubaksturskeppni og margs konar annarri skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Nánari upplýsingar um Safnasvæðið að Görðum: www.museum.is

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008