ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Söfn og sýningar :: Upplýsingamiðstöðin
Prenta vefsíðu

Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Skrúðgarðinum

Upplýsingamiðstöðin á Akranesi er rekin í tengslum við kaffihúsið Skrúðgarðinn að Kirkjubraut 8-10. Hjá upplýsingamiðstöðinni má nálgast allar almennar upplýsingar um Akranes og nágrenni og auk þess ýmsa þjónustu á Vesturlandi sem ferðamenn og gesti kann að vanhaga um. Þar er einnig s.k. heitur reitur (e. Hot Spot) þar sem fólk getur komist í samband við Netið á einfaldan hátt. Einnig er tölva í miðstöðinni til afnota fyrir gesti og gangandi.

Upplýsingamiðstöðin gefur kost á ýmsum möguleikum til fundahalds og viðburða og er oft notuð í slíkum tilgangi. Þá er endastöð Strætó bs., sem gengur á milli Reykjavíkur og Akraness, beint fyrir utan upplýsingamiðstöðina. Reglulega eru haldnar sýningar í miðstöðinni, m.a. á verkum úr listaverkasafni Akraneskaupstaðar.

Upplýsingavefurinn www.visitakranes.is er rekinn í tengslum við upplýsingamiðstöðina en einnig má senda fyrirspurnir til miðstöðvarinnar á netfangið info hjá visitakranes.is.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008