ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Vökudagar

menningar- og listahátíð á Akranesi 27. október til 6. nóvember 2011

 

Rafræn útgáfa af kynningarbæklingi með dagskrá Vökudaga 2011

Í gangi alla Vökudagana  

 

Bókasafn Akraness - Ljósmyndasýning

„Fuglarnir okkar“ - Ljósmyndasýning Inga Steinars Gunnlaugssonar og Helgu Guðmundsdóttur

Á „Veggnum“  er ljósmyndasýningin „Fuglarnir okkar“ þar sem til sýnis eru ljósmyndir sem hjónin Helga Guðmundsdóttir  og  Ingi Steinar Gunnlaugsson hafa tekið af fuglum á undangengnum árum. Helga og Ingi Steinar eru félagar í Vitanum, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, www.vitinn.net

Sýningin er opin á afgreiðslutíma safnsins, mán - fös kl. 10:00 – 18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 14:00.  

 

Anddyri Heilsugæslustöðvarinnar - Ljósmyndasýning

„Það sem auga mitt sér“ - Leikskólinn Garðasel

Ljósmyndasýning elstu barnanna á leikskólanum Garðaseli, í gangi  á meðan á Vökudögum stendur.   

 

Garðakaffi á Safnasvæðinu - Myndband

„Veröldin okkar“ - Leikskólinn Akrasel

Myndband sem sýnir börnin á Kletti í leik og starfi, í gangi  á meðan á Vökudögum stendur.   

 

Anddyri Bónus o.fl. verslana að Smiðjuvöllum 32 - Listasýning

„Bærinn minn og ég“ - Leikskólinn Akrasel

Listaverk barnanna á Gljúfri, í gangi  á meðan á Vökudögum stendur.

 

Anddyri Bónus o.fl. verslana að Smiðjuvöllum 32 - Veggkort

„Húsið mitt og ég“ - Leikskólinn Akrasel

Veggkort sem börnin á Bergi unnu í tengslum við verkefnið "Húsið mitt og ég", í gangi  á meðan á Vökudögum stendur. 

 

Mömmueldhús, Kirkjubraut 8 - Myndlistarsýning

Myndlistarsýning barnanna af leikskólanum Teigaseli

 

Búkolla - nytjamarkaður

Búkolla er opin fimmtudaga kl. 12:00 - 16:00, föstudaga kl. 12:00 - 15:00 og laugardaga kl. 12:00 - 15:00. Alltaf heitt á könnunni og í tilefni Vökudaga verður boðið upp á konfekt með kaffinu laugardagana 29. október og 5.nóvember. Ekki gleyma að kíkja í Búkollu, Vesturgötu 62 á Akranesi, sími 433 1726. 

 

Tónlistarskólinn á Akranesi  - Ljósmyndasýning

„Umhverfið okkar“  - Leikskólinn Vallarsel

Umhverfi barnanna á Hnúk og Stekk, sem eru fædd 2008,  séð með þeirra augum.      

 

Dalbraut 1, (áður BT) og víðar - Ljósmyndasýning

Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi

Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, heldur ljósmyndasýningu á Vökudögum.  Stærstur hluti sýningarinnar verður í gamla BT rýminu í Krónuhúsinu að Dalbraut 1, en hluta sýningarinnar verður dreift í aðrar verslanir og þjónustuaðila sem eru með starfsemi að Dalbraut 1. Formleg opnun sýningarinnar verður í BT rýminu fimmtudaginn 27. október kl. 20:00 - 22:00. Sýningin verður svo opin alla daga kl. 14:00 - 19:00 meðan á Vökudögum stendur. Heimasíða Vitans er www.vitinn.net/ 

 

Héraðsskjalasafn Akraness, Dalbraut 1 - Skjalasýning

Sýning á skjölum úr einkaskjalasafni Ólafs B. Björnssonar (1895-1959)

Sett hefur verið upp sýning á skjölum úr  einkaskjalasafni Ólafs B. Björnssonar (1895-1959) frá Litlateigi á Akranesi. Ólafur var allt í öllu á Akranesi, meðan hann lifði. Virkur í félagsmálum, bæjarpólitík og ritstörfum. Hann gaf út m.a. blaðið Akranes á árunum 1942 - 1959 og skrifaði Sögu Akraness tvö bindi,  sem kom út á árunum 1957-1959. Það einkennir feril Ólafs að hann beitti kröftum sínum til að efla og styrkja veg Akraness á allan þann hátt sem honum var mögulegt. Sýningin er í útlánasal Bókasafns Akraness og er opin á opnunartíma bókasafnsins. Í framhaldi af þessari sýningu mun Héraðsskjalasafn Akraness setja upp sýninguna „Brot úr verslunarsögu Skagamanna“ og mun hún opna á Norræna skjaladaginn þann 13. nóvember nk.  Á þeirri sýningu verða m.a. sýnd skjöl og myndir frá BOCO og Verslun Axels Sveinbjarnarsonar hf.

 

Bókasafn Akraness - Myndlistarsýning

„Myndbrot“ - Myndlistarsýning Eddu Elíasdóttur

Edda Elíasdóttir er frístundamálari,  hefur stundað málaralist undanfarin ár og  sækir tíma hjá Önnu Gunnlaugsdóttur í Myndlistarskóla Mosfellsbæjar. Sýningin er opin alla virka daga kl. 10:00 - 18:00 og á laugardögum 11:00 - 14:00,  meðan á Vökudögum stendur.

 

27. október 

 

20:00 - 21:00 Skagamollið, Kirkjubraut 54 - Opið hús

Gallerí Urmull býður öllum bæjarbúum og öðrum gestum að kíkja í heimsókn á milli kl. 20:00 og 21:00  þar sem ýmis afsláttartilboð verða í gangi og heitt á könnunni.  Munið eftir prjónunum!Verið velkomin í Skagamollið! 

 

20:00 Safnaðarheimilið Vinaminni - Tónleikar

„Brot af mínu uppáhalds“ - Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona og bæjarlistamaður Akraness 2011

Á tónleikunum mun Hanna Þóra líta yfir farinn veg og syngja lögin sem hún hefur verið að syngja í gegnum tíðina í bland við uppáhaldslögin sín, alls konar lög úr öllum áttum. Undirleik annast Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir! Léttar kaffiveitingar verða til sölu gegn hóflegu gjaldi - ekki er tekið við greiðslukortum. 

 

21.00 Tónberg - Tónleikar

Jazzkvintett ásamt söngkonunni Eddu Borg

Kvintettinn skipa: Björn Thoroddsen gítar, Þórir Baldursson píanó, Bjarni Sveinbjörnsson bassa,

Sigurður Flosason saxófón og Einar Scheving trommur.

Miðaverð kr. 2.000.  Ekki er tekið við greiðslukortum

 

28. október 

 

17:00 - 20:00 Höfði – hjúkrunar- og dvalarheimili – Aðstandendaþema

Björn Lúðvíksson sýnir málverk og ljósmyndir.

Mömmur.is verða með kynningu á því sem þær eru að gera.

Eftirtaldir íbúar Höfða verða með söluborð (kort, skartgripi o.fl.)

Auður Elíasdóttir, Björn Gústafsson og Ólöf Hjartardóttir 

 

17:00 Höfði – hjúkrunar- og dvalarheimili – Tónleikar

Pétur Ottesen spjallar á léttum nótum.

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir syngur við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar.

Léttar veitingar. 

 

17:00 Anddyri Tónlistarskólans á Akranesi - Tónleikar

Fjölskyldusöngstund í anddyri Tónlistarskólans.

Börn á aldrinum 2 til 8 ára, í fylgd með fullorðnum, koma saman og syngja skemmtileg lög. Umsjón hafa tónmenntakennararnir Heiðrún Hámundardóttir og Valgerður Jónsdóttir. Frjáls framlög í sparibaukinn. 

 

20:00 Anddyri Tónlistarskóla Akraness - Tónleikar

Kvennakórinn  Ymur heldur kaffihúsakvöld  í anddyri Tónlistarskóla Akraness.

Auk Yms kemur fram ungt tónlistarfólk sem flest stundar nám við skólann. Aðgangseyrir 1.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir 12 ára og yngri. 

 

29. október  

 

11:00 - 14:00 Bókasafn Akraness - Kynning

Hvað er „Fablab”? - Kynningar á starfsemi Fablab smiðjunnar á Akranesi

Verkefnið gengur út á þróun á notkun stafrænnar framleiðslutækni í FabLab smiðju á Akranesi. Í  FabLab smiðjunni eru m.a. unnið að nýsköpunar-og vöruþróunarverkefnum fyrirtækja í léttum iðnaði auk þess sem FabLab smiðjan er vettvangur fyrir einstaklinga og smá fyrirtæki til þess að þróa og smíða ýmiss konar sérhannaðar afurðir sem ætlaðar eru til sölu og frumgerðir vegna tilrauna og vöruþróunar. Stutt kynning verður á starfseminni í umsjón Vigdísar Sæunnar Ingólfsdóttur verkefnisstjóra kl. 12:00 og kl 13:00.  

 

13:00 Safnaskáli Byggðasafnsins í Görðum - Myndlistarsýning

“Bland á striga” - Myndlistarsýning Smára Jónssonar

Smári Jónsson opnar myndlistarsýningu í Safnaskála Byggðasafnsins í Görðum og eru allir velkomnir.

Sýningin er opin alla daga frá kl. 13:00 til 17:00 frá 29. október til 18. nóvember. 

 

13:00 - 14:00 Myndlistaskólinn á Akranesi - Opið hús

Hinn nýstofnaði Myndlistaskóli á Akranesi býður gesti og gangandi hjartanlega velkomna á opið hús í skólanum á milli kl. 13:00 og 14:00. Skólinn er staðsettur í Fróðá á Safnasvæðinu.  Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Kveðja, Anna Leif og Þórey J. 

 

14:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - myndlistarsýning

 J. William Flores opnar sýningu á verkum sínum

William fæddist í New York í Bandaríkjum árið 1969 en bjó í Puerto Rico í tuttugu ár. Hann er að mestu sjálflærður. Hann hefur ekki numið myndlist fyrir utan að taka nokkur námskeið í Puerto Rico, en hefur lært mest af því að horfa á listamenn vinna og skoða verk annara listamanna. Sýningin stendur til 13. nóvember. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14:00 - 17:00. 

 

14:00 Höfði – hjúkrunar- og dvalarheimili – Tónleikar og dans

Tindatríóið, skipað þeim Atla Guðlaugssyni, Bjarna Atlasyni og Guðlaugi Atlasyni ásamt Sveini Arnari Sæmundssyni, syngja nokkur lög. Ármann Jónsson og Erna Dögg Pálsdóttir sýna dans. 

 

14:00 - 17:00 Höfði – hjúkrunar- og dvalarheimili – Aðstandendaþema

Björn Lúðvíksson sýnir málverk og ljósmyndir.

Mömmur.is verða með kynningu á því sem þær eru að gera.

Eftirtaldir íbúar Höfða verða með söluborð (kort, skartgripi o.fl.)

Auður Elíasdóttir, Björn Gústafsson og Ólöf Hjartardóttir

 

30. október  

 

17:00 Tónberg - Kvikmyndasýning

Kvikmyndin „Jón og séra Jón“.

Miðaverð kr.1.250. Ekki er tekið við greiðslukortum.

 

31. október 

 

20:00 Safnaðarheimilið Vinaminni - Leiklist og tónlist

Mánudagsmenning - Draugar í tali og tónum

Leikfélag Mosfellssveitar sviðsetur draugasögur úr Mosfellssveitinni og af Akranesi. Tindatríóið og Sveinn Arnar sjá um tónlistina. Aðgangseyrir kr. 1.500.

 

31. október – 6. nóvember 

 

15:00 – 19:00 Verslunarmiðstöðin að Smiðjuvöllum 32

UngMenning 2011

Dagana 31. október – 6. nóvember stendur Ungmennahúsið Hvíta húsið fyrir viðburðinum Ungmenning 2011 í verslunarmiðstöðinni að Smiðjuvöllum 32 þar sem Bónus, Apótek Vesturlands og Dominos eru m.a. til húsa. Ungmenning 2011 er vettvangur fyrir ungt fólk á Akranesi að láta ljós sitt skína á sviði menningar og lista. Leitast verður við að endurspegla allt það helsta sem er í gangi í listsköpun ungs fólks á Akranesi. Gallerýið verður opið alla ofangreinda daga frá kl. 15:00 – 19:00. 

 

1. nóvember 

 

20:00 Bókasafn Akraness - Brautryðjandinn og Skagamenn

Dagskrá á vegum Bókasafnsins í samstarfi við Snorrastofu í Reykholti.

Óskar Guðmundsson, rithöfundur flytur  erindi um Þórhall Bjarnason biskup (1855-1916) og hvernig hann tengdist  Skagamönnum. Óskar hefur nýlokið bók sinni um Þórhall biskup og kemur hún út um þessar mundir. Þórhallur varð snemma á stjórnmálaferli sínum fulltrúa Borgfirðinga á Alþingi. Í sögu hans er vitnað til skemmtilegra bréfa frægra Akurnesinga, Hallgríms í Guðrúnarkoti og sr. Þorvaldar Böðvarssonar,sem studdu Þórhall af alefli til framboðs. Hinn frjálslyndi ritstjóri og útgefandi, skólamaður og búnaðarfrömuður, Þórhallur Bjarnarson, var biskup landsins 1908-1916. Af einstakri ljúfmennsku aflaði hann sér vinsælda á unga aldri og þótti snemma líklegur til forystu í íslensku þjóðfélagi. Ungur naut hann atlætis Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn  og sjálfur var hann gæfusmiður margra manna.  Í bókarkynningu segir að Óskar Guðmundsson rithöfundur hafi náð að fanga sögu merkilegs fólks, spegla ótrúlega tíma á sköpunarskeiði samfélags á Íslandi, og spinna þráð í þróttmikla sögu af Þórhalli Bjarnarsyni. Allir velkomnir - heitt kaffi á könnunni!

 

2. nóvember 

 

14.00  - 17.00 Rauða kross húsið, Skólabraut 25a - Basar

Basar prjónahóps Rauða krossins

Prjónahópur Rauða krossins stendur fyrir basar og opnu húsi í Rauða kross húsinu á Akranesi miðvikudaginn 2. nóvember kl.14.00 – 17.00.  Á boðstólnum verður kakó og vöfflur og auðvitað hlýjar og fallegar prjónavörur á sanngjörnu verði - góðar í jólapakkann. Prjónahóp Rauða krossins skipa um 20 konur sem hittist á miðvikudögum kl 13:00-15:00 í Rauða krossi húsinu til þess að prjóna og spjalla. Hópurinn hefur bæði haldið basar og einnig tekið þátt í verkefninu „Föt sem framlag“ með því að prjóna fatnað í ungbarnapakka sem sendir eru fátækum fjölskyldum í Austur Evrópu og Afríku. Nú vinnur hópurinn að því að bregðast við beiðni frá Hvíta Rússlandi um að senda pakka ætlaða börnum á aldrinum 2 – 12 ára. Síðastliðin 2 ár hafa farið á bilinu 250 -300 ungbarnapakkar til Hvíta-Rússlands og Malaví, en pakkarnir eru unnir í samvinnu prjónahópsins, Búkollu og Skagastaða. Á þessum vetri hafa þegar verið útbúnir 111 ungbarnapakkar sem eru á leið til Hvíta Rússlands. Verkefni vetrarins verður að prjóna sokka, húfur, peysur og fleira sem þarf í pakka handa eldri börnum, 2ja til 12 ára í Hvita-Rússlandi. Allur ágóði af basarnum rennur í sjóð prjónahópsins sem fjármagnar verkefni hans.

 

16:00 Tónberg - Tónleikar

Leikskólinn Vallarsel

Árlegir tónleikar elstu barnanna á Lundi.  Þar munu þau spila á hljóðfæri, dansa og syngja lög úr ýmsum áttum.  Aðgangur ókeypis.  

 

17:30 - 20:00 Brekkubæjarskóli, smíða- og tölvustofa - Opinn námskeiðsdagur

Listasmiðja unglinga 2011

Listasmiðja unglinga 2011 verður með opinn námskeiðsdag þann 2. nóvember 2011. Listasmiðjan er staðsett í smíðastofu og tölvustofu Brekkubæjarskóla. Foreldrar og aðrir áhugasamir hjartanlega velkomnir á milli 17:30 og 20:00. Gengið inn í smíðastofuna Kirkjuhvolsmegin. Boðið verður upp á léttar veitingar.

 

3. nóvember  

 

16:30 Bílastæðið í Þyrilsnesi í Hvalfirði– Gönguferð

Síðdegisganga á söguslóðum

Gengið á slóðum Harðarsögu og Hólmverja í Þyrilsnesi í Hvalfirði. Lagt upp frá bílastæðinu í nesinu kl. 16:30. Áætlaður göngutími um 2 tímar. Fararstjórn í höndum Arnheiðar Hjörleifsdóttur, húsfreyju á Bjarteyjarsandi. Heitt súkkulaði og kaffi í Hlöðunniað göngu lokinni. Nánar á www.bjarteyjarsandur.is

 

17:30 og 20:30 Bíóhöllin - Tónleikar

Ungir-Gamlir

Ungir-Gamlir tónleikarnir hafa verið fastur liður í dagskrá Vökudaga síðan 2006. Um er að ræða rokktónleika þar sem leiða saman hesta sína, nemendur grunnskólanna og tónlistarskólans en auk þess hafa þekktir tónlistarmenn tekið þátt í tónleikunum. Að þessu sinni verða gestirnir þrír eða þeir Valgeir Guðjónsson, Stuðmaður, Jón Jónsson, tónlistarmaður og Dagur Sigurðsson, sigurvegari í söngvakeppni framhaldsskólanna. Hljómsveitin Tíbrá mun leika undir einsöngsatriði ásamt góðum gestum.Umsjónarmenn verkefnisins eru Flosi Einarsson og Heiðrún Hámundardóttir. Vinsamlegast athugið að fyrri tónleikarnir, kl. 17:30 eru fyrir nemendur grunnskólanna en þeir seinni, kl. 20:30 eru fyrir aðra gesti. 

 

20:00 Tónberg - Tónleikar

Álftagerðisbræður

Hinir einu og sönnu Álftagerðisbræður, Pétur, Sigfús, Gísli og Óskar Péturssynir ásamt Stefáni Gíslasyni píanóleikara. Ágóði af tónleikunum rennur til varðveislu á upptökum karlakórsins Svanir.

Miðaverð kr.3.000. Forsala hefst þriðjudaginn 1. nóvember  í anddyri Tónlistarskólans á milli kl. 10:00  og 13:00. Ekki er tekið við greiðslukortum. 

 

20:00 - 22:00 Skagamollið, Kirkjubraut 54 - Opið hús

Opið hús í Skagamollinu - Líf og fjör á milli kl. 20:00 og 22:00!

Stella Bára Design og Gallerí Urmull verða með ýmis afsláttartilboð í boði. Prjónakaffi og spjall í Gallerí Urmul - kynning á starfsemi List-og Handverksfélags Akraness og nágrennis- nokkrir félagsmenn sýna hvernig verkin þeirra verða til. Heitt á könnunni og þeir sem vilja koma með prjónastuðið !

 

4. nóvember 

 

18:00 Bíóhöllin - Tónleikar

Tónlistarkeppni Nemendafélags Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi

Hin árlega tónlistarkeppni NFFA. 

 

20:00 Tónberg - Tónleikar

Andrea Gylfadóttir og hljómsveit flytja lög úr kvikmyndum.

Hlómsveitina skipa: Eðvarð R. Lárusson gítar, Magnús R. Einarsson mandólín, Tómas M. Tómasson bassa  og Jón Indriðason trommur. Miðaverð kr.2.000. Ekki er tekið við greiðslukortum.

 

4. nóvember  13:00 – 16:15 og 5. nóvember  10:00 – 14:00

Tónberg - Ráðstefna

Brjótum múra! - Ráðstefna um fjölmenningu

Ráðstefnan fjallar um forsendur, kosti og áskoranir fjölmenningarsamfélaga. Ráðstefnan er liður í verkefni sem ber yfirskriftina Brjótum múra! og er unnið í samstarfi Rauða krossins á Akranesi, Akraneskaupstaðar og fleiri aðila með styrk frá Progress áætlun Evrópusambandsins.

Markmið ráðstefnunnar er að efla samræðu um verkefni fjölmenningarsamfélagsins og skapa vettvang fyrir aðila úr ólíkum áttum til þess að koma saman, hlusta hver á annan og deila reynslu sinni. Leitast verður við að setja innflytjendamál og fjölmenningu  í samhengi og skilja hvaða forsendur verða að vera til staðar eigi okkur að takast að nýta til fulls þá kosti sem menningarlegur fjölbreytileiki býður upp á og vinna vel úr þeim áskorunum sem fylgja.

 

5. nóvember 

 

14:00 - 17:00 Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum

Þjóðahátíð Vesturlands

Í boði verður matur frá mörgum löndum, alls kyns fróðleikur og upplýsingar um menningu og þjóðir þeirra sem taka þátt og fjölbreytt menningar- og skemmtidagskrá. Meðal þeirra sem koma fram má nefna brasilísku söngkonuna Jussanam Dejah, Haffa Haff, unglinga frá Brekkubæjar- og Grundaskóla, búlgarska dansara, nemendur frá Dansskóla Írisar á Akranesi og frá Dansskóla Borgarness, Daníel Jón syngur nokkur lög, leikin verður grísk tónlist, Pauline McCarthy flytur Big Band Swing og Rumyana Þorbjarnarson syngur lög frá Búlgaríu. Þá mun Rula Qusay syngja lög frá Palestínu og Tuyet flytur lag frá Víetnam. Þjóðahátíðin er orðinn fastur liður í dagskrá Vökudaga og laðar að sér mikinn fjölda gesta á hverju ári, enda mikill metnaður lagður í hátíðina af hálfu þeirra sem taka þátt í henni.  

 

16:00 Garðakaffi, Safnaskálanum í Görðum - Tónleikar

Hljómsveitin „My Sweet Baklava“

Hljómsveitin leikur fjölbreytta popptónlist með smá rokk- og þjóðlagaívafi.  Hljómsveitina skipa þau Valgerður Jónsdóttir, söngur, píanó, laga- og textasmíðar, Þórður Sævarsson, gítar og lagasmíðar, Sveinn Rúnar Grímarsson, bassi og Smári Þorsteinsson, trommur. Á tónleikunum kemur einnig fram Heiðrún Hámundardóttir sem syngur bakraddir og leikur á klarinett. Aðgangseyrir kr. 1.000 en ekki er tekið við kortum við innganginn.

 

Tónleikar  - Bíóhöllin

Jón Jónsson

 

6. nóvember 

 

13:30 – 16:30Bjarteyjarsandur- Fjölskyldudagur

Karl átti konu sem var sko löt  en úr ullinni búa átti til föt*

Fjölskyldudagur á Bjarteyjarsandi sunnudaginn 6. nóvember þar sem gestum er boðið í fjárhúsin að fylgjast með rúningi. Þrefaldur Íslandsmeistari í rúningi, Julio Cesar Gutierrez á Hávarsstöðum, mun  sýna snilldartakta við rúninginn þar sem snerpa og vandvirkni eru hans einkunnarorð.Ullarselskonan Kristín Gunnarsdóttir, eða Stína á Lundi, verður á staðnum með rokkinn sinn og kambana. Heima á bæ verður prjónasmiðja þar sem ungir sem aldnir geta fengið byrjendakennslu í prjóni. Á boðstólnum verður sveitabakkelsi og ljúffengar afurðir beint frá býli. Opið milli 13:30 og 16:30. Nánar á www.bjarteyjarsandur.is

* (Úr ljóðinu Gilitrutt eftir Þursa)

 

10. nóvember

 

20:00 Tónberg - Tónleikar

Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi

Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi flytur aftur dagskrána „Kling kling“ sem flutt var s.l. vor. Stjórnandi Þjóðlagasveitarinnar er S. Ragnar Skúlason.

 

12. nóvember

 

11:00 - 14:00 Bókasafn Akraness - ljósmynda- og skjalasýning

Norrænn skjaladagur - sýningin „Brot úr verslunarsögu Skagamanna“

Þema norræna skjaladagsins í ár er verslun og viðskipti. Af þessu tilefni mun Héraðsskjalasafn Akraness setja upp sýninguna „Brot úr verslunarsögu Skagamanna“. Á sýningunni verða m.a. sýnd skjöl og myndir frá BOCO og Verslun Axels Sveinbjarnarsonar hf.

 

14. nóvember 

 

17:45 Bókasafn Akraness - Norræn bókasafnavika

Í upphafi dagskrár flytja nemendur úr Tónlistarskólanum á Akranesi  norræna tónlist. Upplestur í ljósaskiptunum kl. 18.00. Kaffi og kleinur í boði bókasafnsins. Dagskráin er unnin í samvinnu Bókasafns Akraness og Norræna félagsins á Akranesi. Allir velkomnir!

 

14.  - 19. nóvember

 

Bókasafn Akraness - Norræn bókasafnavika

Þema vikunnar er Norrænn húmor. Verið velkomin í bókasafnið og njótið skemmtilegra bóka.

 

30. nóvember  

 

Tónleikar - Bíóhöllin

Frostrósir

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008