Hugmyndasjóður
Hugmyndasjóður er nýtt verkefni sem sett er af stað til að laða fram frumkvæði og góðar hugmyndir um spennandi verkefni á Akranesi. Megin tilgangur Hugmyndasjóðs er að hvetja fólk til að koma fram með alls kyns hugmyndir sem efla Akranes, mannlíf, atvinnulíf og vellíðan fólksins í bænum. Allir geta tekið þátt og lagt hugmyndir sínar í Hugmyndasjóð. Hugmyndasjóður kallar eftir alls kyns hugmyndum um atvinnuskapandi verkefni, samfélagslega uppbyggjandi verkefni, nýsköpunarverkefni, heilsurækt eða hönnun, framleiðslu á vöru eða tækjum, ferðaþjónustutengd verkefni s.s. á sviði afþreyingar fyrir ferðafólk – og svo mætti áfram telja.
Galdurinn við góða hugmynd er sá að það kostar ekkert að hugsa og laða fram góða hugmynd og fátt er eins skemmtilegt og hressilegt hugarflug, ekki síst í góðra vina hópi. Kúnstin er svo að muna hugmyndina, útfæra hana og gefa fleirum kost á að hjálpa til við að láta hugmyndina verða að veruleika. Þar kemur Hugmyndasjóður til sögunnar.
Hugmyndasjóður virkar þannig að þeir sem vilja koma hugmyndum sínum í farveg fylla út neðangreint innsláttarform og geta auk þess sent með fylgigögn ef þess gerist þörf. Hugmyndasjóður heitir fullum trúnaði, sé þess óskað og virðir rétt fólks til hugarsmíða sinna.
Fjallað verður um allar innsendar hugmyndir af sérstökum starfshópum um atvinnumál sem skipaðir hafa verið af hálfu bæjaryfirvalda á Akranesi en hóparnir munu m.a. meta kosti og galla hverrar hugmyndar, tækifæri þeirra og möguleika. Metnir verða ýmsir þættir hverrar hugmyndar, s.s. rekstrarlegir þættir, fjármögnunarmöguleikar, markaðssetning, framsetning, möguleikar til tekjusköpunar og atvinnusköpunar, frumleiki og sérstaða hugmynda – svo dæmi séu tekin.
Mikilvægt er að hugmyndin sé raunhæf, útfæranleg, innan skynsamlegra marka kostnaðarlega og að hægt sé að hrinda hugmynd nær framkvæmd með skömmum fyrirvara. Sérstaka athygli fá þær hugmyndir sem koma til með að skapa fólki - ekki síst ungu fólki – atvinnu og skapa um leið spennandi verkefni á Akranesi.
Hugmyndasjóður heyrir undir Akranesstofu og allar nánari upplýsingar um sjóðinn veitir Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri Akranesstofu.
Leggðu inn í Hugmyndasjóðinn – það marg borgar sig!