ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Tilkynningar
Prenta vefsíðu
6. febrúar 2012 09:13

Köttur í óskilum

Hjá dýraeftirlitsmanni Akraneskaupstaðar er ómerkur köttur í óskilum.

Kötturinn var fangaður þann 5. febrúar.

Verði hans ekki vitjað af eiganda innan 7. daga frá dagsetningu þessarar tilkynningar mun dýraeftirlitsmaður ráðstafa honum annað.

Nánari upplýsingar má sjá hér.

nánar...
30. janúar 2012 12:56

Laust starf - búsetuþjonusta

Laust er til umsóknar starf í búsetuþjónustu á Akranesi.
Starfið felur í sér stuðning við einstakling með fötlun í athöfnum daglegs lífs, á heimili hans og við tómstundir.
Um tímabundna tímavinnu er að ræða á virkum dögum
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á málefnum fólks með fötlun.
Krafist er skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða og færni í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar n.k.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu Akraneskaupstaðar Stillholti 16 - 18, 300 Akranes. Einnig er hægt að sækja um rafrænt hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Bjarnadóttir, forstöðuþroskaþjálfi, netfang: helga.bjork.bjarnadottir@akranes.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
 

nánar...
30. janúar 2012 09:02

STRÆTÓ - Opinn kynningarfundur

Opinn kynningarfundur um strætó á milli Reykjavíkur og Akraness verður haldinn þriðjudaginn 31. janúar kl. 20:00 í Garðakaffi á safnasvæðinu á Akranesi. Til fundarins mæta fulltrúar Strætó bs. og kynna almenningssamgöngur á milli Reykjavíkur og Akraness. 

nánar...
26. janúar 2012 03:01

Álagning fasteignagjalda á Akranesi árið 2012

Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2012, er nú lokið og verða álagningarseðlar sendir til eigenda fasteigna á næstu dögum.

Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga eru komnir til banka. Akraneskaupstaður annast álagningu á fasteignaskatti, lóðarleigu og sorphirðugjaldi en Landsbanki Íslands annast innheimtu þeirra með sama hætti og áður.


Sérstök athygli er vakin á þeirri nýjung að álagningarseðlar fasteigna eru birtir rafrænt eigendum allra fasteigna á vefnum www.island.is


1. Velja skal efst til hægri á vefsíðunni: ,,Mínar síður“
2. Velja skal efst til hægri á vefsíðunni: ,,Mínar síður – innskrá“.
3. Til að skrá sig inn skal nota annað hvort rafræn skilríki eða veflykil ríkisskattstjóra.
4. Veljið ,,Skjölin mín“ og birtist þá vefsíða þar sem má meðal annars finna álagningarseðla fasteignagjalda 2012.


Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, fá einnig lækkun á árinu 2012, ef þeir uppfylla skilyrði reglna um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega (sjá reglur).

Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2010, Þegar álagning vegna tekna ársins 2011, liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn  endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega.
Akraneskaupstaður framkvæmir breytingar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda.

Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigi lögheimili á Akranesi og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Bæjarstjórn hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2012, verði eftirfarandi:


Hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 2.375.000, er 100% niðurfelling á fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 3.289.000.

Hjá hjónum/sambýlingum með tekjur allt að kr. 3.327.000, er 100% niðurfelling á fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.604.000.

 

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, Reykjavík annast álagningu og innheimtu vatnsgjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000.

Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.


Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, veitir upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts, lóðarleigu og sorphirðugjalds og breytingar á þeim í síma 433 1000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið akranes@akranes.is.


Gjalddagar fasteignagjalda umfram kr. 12.000 fyrir árið 2012 eru:
15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september, 15. október.

Gjalddagi fasteignagjalda undir kr. 12.000 er 15. apríl.

 

Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar.
 

nánar...
20. janúar 2012 12:54

Heilsuefling aldraðra

Heilsuefling aldraðra.
Leikfimi eldri borgara er í íþróttahúsinu Jaðarsbökkum, mánudaga og fimmtudaga kl. 9:00 til 9:45 

nánar...
13. janúar 2012 03:06

Dagforeldra vantar til starfa

Dagforeldrar
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu frá dagforeldrum óskar Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar  eftir fleiri dagforeldrum til starfa  á Akranesi. Veiting leyfa er samkvæmt ,,Reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum.“ 
Reglurnar má nálgast á vefslóðinni: http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/907-2005
og í reglum  Akraneskaupstaðar  http://www.akranes.is/stjornsysla/reglur-og-samthykktir/grs_id/1409/
Forsendur fyrir leyfisveitingu til dagforeldra má finna í ofangreindri reglugerð.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í þjónstuveri Akraneskaupstaðar,  Stillholti 16-18.
Einnig er hægt að sækja um rafrænt um rafrænt hér  á vef Akraneskaupstaðar.
Nánari upplýsingar veita  Arnheiður Andrésdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi,netfang: arnheidur.andresdottir@akranes.is og fulltrúar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar.

 

nánar...
29. desember 2011 04:10

Breyttur afgreiðslutími hjá Orkuveitu Reykjavíkur

Frá og með 2. janúar 2012 verður afgreiðsla Orkuveitu Reykjavíkur að Dalbraut 8, Akranesi, opin frá kl. 09:00 til 13:00.

Sjá nánar um OR 

nánar...
30. september 2011 05:01

DÝRAEFTIRLIT - SÍMI 898 9478

Dýraeftirlitsmaður Akraneskaupstaðar er Snorri Guðmundsson og er hann með aðsetur í þjónustumiðstöð að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin). Hann annast eftirlit með gæludýra- og búfjárhaldi á Akranesi eða nánar tiltekið daglegt eftirlit með hundum, köttum og búfénaði í samræmi við samþykktir um hunda- og kattahald svo og reglur um búfjárhald.

Hægt er að koma fyrirspurnum, ábendingunum eða kvörtunum til dýraeftirlitsmanns á netfangið snorri.gudmundsson@akranes.is eða í síma 898 9478.

 

nánar...
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008