Skipulags- og umhverfisstofa
Undir Skipulags- og umhverfisstofu Akraneskaupstaðar heyra skipulags- og byggingarmál, fasteignamat og lóðaskráning, landupplýsingakerfi, hreinlætis- og umhverfismál, málefni slökkviliðs, sorphirða og sorpeyðing, umferðar- og samgöngumál.
Stofan sér um framkvæmdastjórn fyrir almannavarnanefnd í samvinnu við bæjarstjóra og formann almannavarnanefndar.
Framkvæmdastjóri fer með daglega stjórn stofunnar, samræmir störf og verkefni starfsmanna og ber ábyrgð á verkefnum þess gagnvart bæjarstjóra og bæjarráði.
Skipulags- og umhverfisstofa er bæjarráði til ráðgjafar varðandi stefnumótandi ákvarðanir í skipulags- og byggingarmálum og öðrum þeim málaflokkum sem undir hana heyra. Stofan annast framkvæmd þeirra verkefna sem undir hana heyra.
Hlutverk Skipulags- og umhverfisstofu er að veita bæjarbúum, bæjarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggingaverktökum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulags- og byggingarmál og aðra málaflokka stofunnar.
Nánari upplýsingar:
Skipulags- og umhverfisstofa
Stillholti 16-18, 1. hæð
300 Akranesi
Sími 433 1000
Fax 433 1090
Netfang: thorvaldur.vestmann hjá akranes.is
Vefur: www.akranes.is
Opnunartími er frá kl. 09:30 - 12:00 og kl.12:30 - 15:30.
Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is.
Einnig má leita beint til starfsfólks Skipulags- og umhverfisstofu: