ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Bæjarstjórn
Prenta vefsíðu

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar

Um bæjarstjórn Akraneskaupstaðar segir m.a. eftirfarandi í I. kafla samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar:

,,I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar

1. gr.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er skipuð 9 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í bæjarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Bæjarstjórn fer með stjórn Akraneskaupstaðar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal verkefna bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar er:

1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, ráð, stjórnir og aðrar nefndir skv. V. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem endurskoða skal hjá bæjarfélaginu, stofnunum þess og fyrirtækjum.

2. Að móta stefnu fyrir starfsemi bæjarstjórnar, stofa, fyrirtækja og deilda. Setja starfsemi bæjarins reglur, m.a. um ábyrgðarmörk ráða, stjórna og nefnda, kjörinna fulltrúa og embættismanna, gjaldskrár o.þ.h. eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

3. Að stjórna fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar. Bæjarstjórn tekur ákvarðanir um verulegar skuldbindingar bæjar-félagsins til lengri tíma.

4. Að gera fjárhagsáætlanir og starfsáætlanir sem eru stefnumótandi fyrir stofur, fyrirtæki, stofnanir og deildir.

5. Að ákveða stjórnskipan bæjarfélagsins, ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu sbr. 78. grein.

Sjá nánar Samþykktir um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008