ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Bæjarstjórn :: Bæjarstjóri
Prenta vefsíðu

Bæjarstjórinn á Akranesi

Árni Múli Jónasson
Bæjarstjóri á Akranesi er Árni Múli Jónasson. Hann er fæddur 14. maí 1959, lögfræðingur  að mennt, með meistarapróf í alþjóðlegum mannréttindalögum frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Árni Múli er kvæntur Arnheiði Helgadóttur sérkennara og eiga þau fjögur börn.  Þau hafa verið búsett á Akranesi síðan árið 2006.

Árni Múli starfaði sem fiskistofustjóri frá árinu 2009 þar til han tók við starfi bæjarstjóra, en áður starfaði hann m.a. sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og aðstoðarfiskistofustjóri þar til hann tók við starfi fiskistofustjóra.

 

Árni Múli var ráðinn í starf bæjarstjóra kjörtímabilið 2010-2014 á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 3. ágúst 2010.

 

Viðtalstími:

Bæjarstjóri er með viðtalstíma á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 10:00 - 12:00.

Tímapantanir í Þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð eða í síma 433 1000.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008