Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar er alla jafna unnin af forstöðumönnum stofnana og starfsmönnum skrifstofa Akraneskaupstaðar. Undanfarin ár hefur áætlunin verið samþykkt af bæjarstjórn í desember ár hvert, en lögum samkvæmt skal bæjarstjórn fjalla um áætlunina á tveimur bæjarstjórnarfundum.
Í bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar segir eftirfarandi um gerð fjárhagsáætlunar:
,,Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.
Bæjarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess. Fjárhagsáætlun skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði, nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórninni."
Sjá fjárhagsáætlun ársins 2008
Sjá fjárhagsáætlun ársins 2010
Sjá fjárhagsáætlun ársins 2011 og 3ja ára áætlun 2012-2014
Sjá fjárhagsáætlun ársins 2012 og 3ja ára áætlun 2013-2015