Framkvæmdastofa
Framkvæmdastofa er stjórnunareining innan Akraneskaupstaðar og sérhæfir sig í framkvæmdum, nýbyggingum, rekstri fasteigna og annarra mannvirkja fyrir hönd Akraneskaupstaðar.Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar sér m.a. um undirbúning allra framkvæmda s.s. framkvæmdir við fasteignir, götur, gangstéttir og stíga, jarðeignir og lönd, gatnahreinsun, leiksvæði og opin svæði, eignaumsýslu ásamt innkaupum og útboðum framangreindra þátta. Framkvæmdastofa annast umsjón og eftirlit með gæludýrahaldi skv. gildandi reglugerðum þar um.
Framkvæmdastofa annast umsjón og eftirlit með búfjárhaldi á Akranesi þ.m.t. beitarmál og fjallskil.
Framkvæmdastofa er framkvæmdaráði til ráðgjafar varðandi stefnumótandi ákvarðanir í þeim málaflokkum sem undir hana heyra og annast framkvæmd þeirra. Hlutverk Framkvæmdastofu er að veita bæjarbúum, bæjarfulltrúum, forstöðumönnum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um málaflokka stofunnar.
Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu er Þorvaldur Vestmann.
Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is