Fundir framkvæmdaráðs
Skv. 71. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar skal framkvæmdaráð að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu, bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess.
Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu undirbýr ráðsfundi í samráði við formann ráðsins. Hann sér um að framkvæmdaráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fundi tilkynnir hann forföll til framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu og boðar varamann sinn.
Fastir fundir framkvæmdaráðs eru 1. og 3. þriðjudag í hverjum mánuði og hefjast kl. 17:15.