ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Bæjarráð, fundur nr. 3145

Dags. 25.1.2012

3145. fundur bæjarráðs, haldinn  í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18,
 miðvikudaginn 25. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:
Guðmundur Páll Jónsson, formaður
Þröstur Þór Ólafsson, aðalmaður
Einar Brandsson, áheyrnarfulltrúi
Guðmundur Þór Valsson, varamaður
Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari

Fundargerð ritaði:  Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari.

Fyrir tekið:

1.  1112145 - Fab Lab 2012 - framlag
 Viðræður við Samúel og Vigdísi hjá Fab Lab.
 Á fundinn mættu verkefnastjóri og formaður starfshóps um Fab-Lab til viðræðna um málefni smiðjunnar.  Gerðu þau grein fyrir rekstri, þátttöku og horfum.
   
2.  1201114 - Snjómokstur
 Bréf Umferðarstofu dags. 9. janúar 2012, þar sem hvatt er til og óskað eftir að öryggi í umferðinni verði haft í huga við ákvörðun um snjóhreinsun að vetrarlagi í framtíðinni.
 Vísað til Framkvæmdastofu til umfjöllunar.
   
3.  1109059 - Almenningssamgöngur milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins
 Bréf Samtaka sveitarfélag á Vesturlandi þar sem óskað er eftir staðfestingu á samningi um almenningssamgöngur. Um er að ræða yfirtöku á skipulagingu almenningssamgangna á milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins.
 Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um samninginn.
   
4.  1112153 - Akraneshöfn 2012 - starfshópur v. uppbyggingar
 Bréf bæjarstjórnar dags. 18. janúar 2012, þar sem bæjarráði er falið að útbúa erindisbréf og gera tillögur um skipan í starfshóp vegna uppbyggingar Akraneshafnar 2012.
 Bæjarritara falið að leggja fyrir bæjarráð tillögu að erindisbréfi fyrir starfshópinn.  Skipun í starfshópinn er frestað þar til erindisbréfið liggur fyrir.
   
5.  1201168 - Katanestjörn - endurheimt tjarnar
 Bréf Faxaflóahafna dags. 13. janúar 2012, til eignaraðila, um endurheimt Katanestjarnar ásamt skýrslu um málið.
 Lagt fram.
   
6.  1201106 - Fjárhagsáætlun til 3 ára - 2013-2015
 Bréf bæjarstjórnar dags. 18. janúar 2012, þar sem tillögunni er vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
 Á fundinn mætti til viðræðna Andrés Ólafsson, fjármálastjóri.  Farið var yfir forsendur og ýmsa þætti 3ja ára áætlunar.
   
7.  1201211 - Reglur um innkaupakort
 Drög að reglum um innkaupakort.
 Lagt fram til kynningar.
   
8.  1111088 - Stuðningur við frumkvöðla og fyrirtæki - reglur Akraneskaupstaðar
 Afgreiðslu frestað.
   
9.  1107396 - Aðstoð vegna húsnæðis
 Bæjarstjóri gerði grein fyrir erindinu.
 Afgreiðla trúnaðarmál.
   
10.  1201244 - Kaup á hugbúnaði 2012
 Kaup á leyfum vegna Microsoft hugbúnaðar. Bréf deildarstjóra bókhaldsdeildar dags. 25. janúar 2012, þar sem lagt er til að tilboði Omnis ehf um Microsoft leyfi verði tekið.
 Bæjarráð samþykkir tillöguna.
   
11.  1201011F - Starfshópur um atvinnumál - 16
 16. fundargerð starfshóps um atvinnumál frá 18. janúar 2012.
 Lögð fram.
   
12.  1112159 - Orkuveita Reykjavíkur - Fundargerð eigendafundar 5. janúar 2012.
 Lögð fram.
   
13.  1107002 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2011
 Fundargerðir heilbrigðisnefndar Vesturlands númer 102 og 103 frá 28. nóvember og 5. desember 2011.
 Lagðar fram.
   
14.  1201188 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - fundargerðir 2012
 104. fundargerð heilbrigðisnefndar frá 16. janúar 2012.
 Lagðar fram.
   
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00.



Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008