ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fjölskylduráð, fundur nr. 83

Dags. 24.1.2012

83. fundur fjölskylduráðs, haldinn  í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18, þriðjudaginn 24. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:30


Fundinn sátu:
Ingibjörg Valdimarsdóttir, formaður
Þröstur Þór Ólafsson, aðalmaður
Einar Brandsson, áheyrnarfulltrúi
Helga Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu
Svala Kristín Hreinsdóttir, verkefnisstjóri
Elsa Lára Arnardóttir, 1. varamaður
Fundargerð ritaði:  Svala Hreinsdóttir, verkefnisstjóri.

Fyrir tekið:


1. 1112142 - Langtímaveikindi starfsmanna 2012 - ráðstöfun fjármuna
Bréf bæjarstjóra sem sent í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2012 þar sem upplýst er um að kr. 10.450.000 er ráðstafað til að mæta langtímaveikindum starfsmanna Akraneskaupstaðar á árinu 2012.
Lagt fram.


2. 1112141 - Búnaðar- og áhaldakaup 2012 - ráðstöfun fjármuna.
Bréf bæjarstjóra sem sent í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2012 þar sem upplýst er um að kr. 10.733.000 sem ætlað er til endurnýjunar tækja og áhalda hjá stofnunum Akraneskaupstaðar.
Lagt fram.


3. 1112143 - Félagsleg úrræði 2012 - framlag
Bréf bæjarstjóra þar sem upplýst er um að kr. 6.572.000 er ráðstafað til reksturs Endurhæfingarhússins Hver, til atvinnumála fatlaðs fólks kr. 2.090.000 og til Búkollu kr. 1.500.000. Fjölskylduráð felur framkvæmdarstjóra Fjölskyldustofu að óskað eftir greinargerð um starfsemina á árinu 2011 og áætlanir og horfur fyrir árið 2012, þar með möguleikum á að afla verkefnunum stuðnings frá sjóðum og samstarfsaðilum. Greinargerðin liggi fyrir svo fljótt sem verða má en eigi síðar en 1. mars 2012.

4. 1112147 - Vinnuskóli Akraness 2012 - framlag
Bréf bæjarstjóra þar sem tilkynnt er um bókun bæjarstjórnar frá 17. janúar 2012. En þar segir m.a.að gert sé ráð fyrir kr. 45.355.000 til reksturs vinnuskólans. Bæjarstjórn óskar eftir að fjölskylduráð tilnefni einn fulltrúa í starfshóp sem á að taka reksturinn til umfjöllunar, tilgang hans og fyrirkomulag. Niðurstöður starfshópsins eiga að liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl 2012.
Fjölskylduráð tilnefnir Svölu Hreinsdóttur verkefnisstjóra Fjölskyldustofu í þennan starfshóp.

 
5. 1112156 - Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2012 - úrvinnsla
Bréf bæjarstjóra þar sem kynnt er bókun sem gerð var við samþykkt fjárhagsáætlun 2012. "Framkomnum tillögum frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem haldinn var 29. nóvember 2011 er vísað til umfjöllunar og úrvinnslu hjá Fjölskyldu- og Framkvæmdaráðum.
Fjölskylduráð felur Heiðrúnu Janusardóttur verkefnisstjóra æskulýðs- og forvarnarmála að draga saman þau atriði sem tilheyra fjölskylduráði og vinna úr þeim tillögur og leggja fyrir fjölskylduráð.


6. 1201203 - Fjárhagsáætlun 2012 Fjölskyldustofa - niðurskurður
Um leið og fjárhagsáætlun 2012 var samþykkt var gerð hagræðingarkrafa 1-3% vegna rekstrarkostnaðar. Áætlunum um hagræðingu þarf að skila til bæjarráðs eigi síðar en 24. febrúar.
Umræður um þá möguleika sem eru í stöðunni í dag.  Fjölskylduráð felur framkvæmdarstjóra að gera tillögur í samvinnu við stjórnendur um hægræðingu. 


7. 1201157 - Ávísun á öflugt tómstundastarf 2012
Í ljósi þess að Íþróttabandalag Akraness er að taka upp nýtt samskiptakerfi - hugbúnað á netinu þar sem foreldrar skrá börn til þátttöku í íþróttastarfi og ganga frá greiðslu æfingagjalda þá verður tekið upp nýtt fyrirkomulag vegna tómstundastyrks Akraneskaupstaðar sem á undanförnum árum hefur falist í heimsendingu "Ávísunar á öflugt tómstundastarf"
Fjölskylduráð leggur áherslu á að Íþróttabandalagið hugi að öðrum innheimtuleiðum gagnvart þeim foreldrum sem ekki geta lagt út fyrir æfingagjöldum eins og nýja kerfið gerir ráð fyrir.  Fjölskylduráð óskar eftir að fá að fylgjast með framvindu málsins.


8. 1201156 - Hádegisverður

Í undirbúningi er að bjóða öllum starfsmönnum Fjöliðjunnar, bæði á vernduðum vinnustað og hæfingunni upp á að kaupa hádegisverð á vinnustaðnum. Gert er ráð fyrir að gera þriggja mánaða tilraun þar sem matreiðsla fer fram í leikskólanum Akraseli með aðstoð starfsmanns Fjöliðjunnar.
Fjölskylduráð samþykkir að gera þessa þriggja mánaða tilraun frá og með 1. febrúar nk. og samþykkir jafnfram tillögu framkvæmdarstjóra Fjölskyldustofu um að verðleggja hverja máltíð kr. 450.  Fjölskylduráð óskar eftir greinargerð að tveimur mánuðum liðnum.
   
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:35.



Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008