Framkvæmdaráð, fundur nr. 71
Dags. 25.1.2012
71. fundur framkvæmdaráðs, haldinn í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18,
miðvikudaginn 25. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Einar Benediktsson, formaður
Dagný Jónsdóttir, aðalmaður
Gunnar Sigurðsson, áheyrnarfulltrúi
Gunnhildur Björnsdóttir (GB), varamaður
Þorvaldur Vestmann, framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu
Fundargerð ritaði: Þorvaldur Vestmann, framkvæmdastjóri.
Fyrir tekið:
1. 1201089 - Gjaldskrár íþróttamannvirkja 2012
Umfjöllun um breytingar á gjaldskrá.
Hörður Jóhannesson mætti á fund ráðsins.
Kynnt var tillaga um breytingu á gjaldskránni þar sem m.a. er gengið út frá gjaldfrjálsum aðgangi grunnskólabarna í sund og hækkun á 30 miða kortum.
Framkvæmdaráð samþykkir að vísa gjaldskrárbreytingunni til bæjarstjórnar.
2. 1112156 - Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2012 - úrvinnsla
Samþykkt bæjarstjórnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 um að vísa tillögum frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins til umfjöllunar hjá Framkvæmdaráði.
Farið var yfir þær ábendingar sem fram komu á fundinum sem fjölluðu um æfingahúsnæði fyrir hljómsveitir, bætta aðstöðu í Akraneshöll, bætt aðgengi við Langasand, aðgerðir til að efla miðbæ Akraness, skreytingar á hátíðisdögum og fjölgun sorpíláta á almannafæri.
Framkvæmdaráð óskar eftir að framkvæmdastjóri taki saman geinargerð um áðurnefnd atriði og leggi fyrir ráðið til umfjöllunar.
3. 1112147 - Vinnuskóli Akraness 2012 - framlag
Samþykkt bæjarstjórnar frá 17. jan. s.l. um skipan fulltrúa í vinnuhóp sem taka skal rekstur vinnuskólans til umfjöllunar, tilgang hans og fyrirkomulag. Niðurstöður skulu lagðar fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. apríl n.k.
Framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir því við Írisi Reynisdóttur, garðyrkjustjóra að hún taki sæti í vinnuhópnum.
4. 1110097 - Fjárhagsáætlun 2012 - Framkvæmdastofa
Umfjöllun um aðgerðir til hagræðingar í rekstri Framkvæmdastofu sbr. samþykkt bæjarstjórnar frá 13. des. 2011.
Farið var yfir þá möguleika sem eru í stöðunni. Framkvæmdaráð felur framkvæmdastjóra að afla frekari upplýsinga í samræmi við umræður á fundinum.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:10.
Til baka