Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 61
Dags. 17.1.2012
61. fundur skipulags- og umhverfisnefndar, haldinn í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18, mánudaginn 16. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Guðmundur Þór Valsson, formaður
Magnús Freyr Ólafsson, varaformaður
Magnús Guðmundsson, aðalmaður
Bergþór Helgason, aðalmaður
Sigurður V Haraldsson, aðalmaður
Þorvaldur Vestmann, framkvæmdastjóri Skipulags- og umhverfisstofu
Hafdís Sigurþórsdóttir, starfsmaður Skipulags- og umhverfisstofu
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir, fulltrúi.
Fyrir tekið:
Almenn erindi
1 1112059 - Ægisbraut 15 - fyrirspurn
Umfjöllun um tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsbreytingin verði auglýst samkvæmt 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
2 1111097 - Kirkjubraut 46 - breyting á lóð
Umfjöllun um tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsbreytingin verði grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, lóðarhöfum nr. 5 og 7 við Skagabraut og nr. 40 við Kirkjubraut.
3 1110263 - Fyrirspurn frá Á stofunni ehf um áætlaðar breytingar á Sólmundarhöfða 7
Kynnt greinargerð og uppdrættir frá fyrirspyrjanda vegna ábendinga nefndarinnar.Skipulags- og umhverfisnefnd lýsir ánægju með þær breytingar sem hafa verið gerðar á fyrirhugaðri byggingu, sem eru í samræmi við ábendingar nefndarinnar.
4 1112157 - Sorpmál 2012
Lögð fram greinargerð um tölulegar upplýsingar um losun sorps á árinu 2011. Samdrátturinn sem orðið hefur á urðun heimilissorps fyrstu 12 mánuði eftir að nýtt verklag var innleitt, er fyllilega í samræmi við þær væntingar sem gerðar voru í upphafi. Magnið hefur dregist saman um 948 tonn eða 40% miðað við 12 mánaða tímabil fyrir breytingu.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:20.
Til baka