Gott að vita
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
HVE Akranesi skiptist í sjúkrahús og heilsugæslustöð.
Heilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness og hefur jafnframt forystuhlutverk varðandi heilsuvernd og forvarnarstarf.
Sjúkrahúsið er deildaskipt sjúkrahús. Aðal upptökusvæðið er vestur- og norðvesturhluti landsins. Veitt er fjölþætt sérfræðiþjónusta með viðbúnaði til móttöku og meðferðar bráðveikra allan sólarhringinn. Íbúum höfuðborgarsvæðisins og öðrum landsmönnum er í vaxandi mæli boðin sérfræðiþjónusta í tilteknum greinum.
HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn HVE Akranesi eru um 240 talsins.
Bókasafn Akraness
Bókasafn Akraness er að Dalbraut 1, sími 433 1200. Í Bókasafni Akraness er til útlána fjölbreytt úrval bóka, tímarita, dagblaða, myndbanda og DVD-diska, tónlist, margmiðlunarefni og tungumálanámskeið á geisladiskum eða hljóðsnældum.
Allar nánari upplýsingar um Bókasafn Akraness má finna á vefsíðu safnsins, http://www.akranes.is/bokasafn/
Póstur
Íslandspóstur, Smiðjuvöllum 30, 300 Akranesi sími 431 1000. Þar er boðin öll almenn póstþjónusta, dreifing böggla og bréfa.
Símaþjónusta
Síminn
Þú getur flutt gamla númerið með þér hvert á land sem er. Hins vegar þurfa þeir sem eru í fyrsta skipti að sækja um nýtt símanúmer að sækja um hjá Símanum á Akranesi, í verslun Omnis að Dalbraut 1, sími 540 2115. Símanúmer í aðalþjónustuveri Símans er 800 7000.
Vodafone
Þjónusta Vodafone á Akranesi er hjá Versluninni Model, Þjóðbraut 1 á Akranesi í síma 433 0300.
Hiti og rafmagn
Orkuveita Reykjavíkur
Akraneskaupstaður er hluthafi í Orkuveitu Reykjavíkur sem sér íbúum Akraneskaupstaðar fyrir bæði hita og rafmagni. Skrifstofa Orkuveitunnar á Akranesi er á Dalbraut 8. Síminn er 516 6000. Sími í þjónustuveri er 516 6100.
Bankar
Tveir viðskiptabankar hafa starfsstöðvar á Akranesi.
Íslandsbanki hf
Dalbraut 1
300 Akranesi
Sími: 440 4000
Landsbankinn
Þjóðbraut 1
300 Akranesi
Sími: 410 4186
Verslanir og þjónusta
Akranes er langstærsta sveitarfélag Vesturlands og þar er að finna fjölbreytt úrval verslana og þjónustu af ýmsu tagi. Í bænum starfa rótgrónar verslanir og fyrirtæki í bland við velflest helstu verslunar- og þjónustufyrirtæki sem halda úti starfsemi á landsvísu. Fjölmargar verslanir bjóða alls kyns varning á verðum sem fyllilega standast samkeppni við höfuðborgarsvæðið. Á Akranesi má einnig finna frábæra veitingastaði og úrval matvöruverslana.
Samgöngur
Traustar og öruggar samgöngur eru við Akranes og sem dæmi má nefna að aðeins er um 50 km akstur á milli Akraness og miðborgar Reykjavíkur. Það tekur því að jafnaði aðeins um 40 mínútur að komast þarna á milli og gildir þá einu í hvora áttina er ekið! :)
Strætó bs. hefur um nokkurt skeið haldið úti reglubundnum ferðum á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins og eru farnar allt að 13 ferðir á milli á dag. Þannig tengist Akranes samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins og gerir þannig höfuðborgarbúum kost á að heimsækja Skagann á einfaldan og ódýran máta, auk þess sem þessi samgöngumáti auðveldar Skagamönnum að sækja þjónustu og ýmsa viðburði til Reykjavíkur.