Íþróttir og tómstundir
Á Akranesi er boðið upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem nær til allra aldurshópa. Öll aðstaða til íþróttaiðkunar á Akranesi er afar glæsileg og með því besta sem þekkist á Íslandi, enda iða íþrótta- og tómstundamannvirki bæjarins af lífi frá morgni til kvölds. Miðstöð íþrótta á Akranesi er á Jaðarsbökkum, þar sem finna má m.a. hina glæsilegu fjölnota Akraneshöll, sundlaug, aðalleikvang bæjarins og íþróttahús. Á Jaðarsbökkunum sjálfum eru síðan fjölmargir knattspyrnuvellir sem njóta mikilla vinsælda á sumrin. Við grunnskóla bæjarins eru sparkvellir og víða má finna útivistarsvæði, gönguleiðir og aðra möguleika til hollrar útiveru. Langisandur er vinsæl útivistarparadís, enda má segja að gönguferð um sandinn samsvari hinum ráðlagða dagskammti af hreyfingu og margir ganga á Akrafjall sér til heilsubótar.
Íþróttamannvirki á Akranesi
Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum
Sundlaugar
Íþróttahúsið við Vesturgötu
Aðalleikvangur á Jaðarsbökkum
Akraneshöllin á Jaðarsbökkum
Tómstundir fyrir börn og ungmenni
Vinnuskóli Akraness
Íþrótta- og félagsstarf
Myndlistaskólinn á Akranesi