ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Atvinna :: Akranesstofa
Prenta vefsíðu

Akranesstofa

Akranesstofa fer með stjórn markaðs- og kynningarmála, menningarmála, ferðamála og safnamála Akraneskaupstaðar í umboði bæjarstjórnar skv. erindisbréfi þar um. Verkefnisstjóri Akranesstofu fer með daglega stjórn þessara málaflokka, samræmir störf og verkefni starfsmanna og ber ábyrgð á verkefnum gagnvart bæjarstjóra og bæjarráði.

Undir Akranesstofu heyrir Byggðasafnið að Görðum og Safnasvæðið, Bókasafn Akraness, Ljósmyndasafn Akraness, Héraðsskjalasafn Akraness, Listasetrið Kirkjuhvoll, Bíóhöllin, upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akranesi og tjaldstæði bæjarins. 

Akranesstofa hefur yfirumsjón með skipulagi og kynningu á ýmsum föstum og tilfallandi viðburðum sem Akraneskaupstaður hefur umsjón með, t.a.m. Hátíð hafsins, hátíðarhöldum á þjóðhátíðardegi, Írskum dögum og menningarhátíðinni Vökudögum o.fl. samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni. Akranesstofa kemur einnig að skipulagi fjölmargra annarra viðburða sem haldnir eru í bænum á vegum ýmissa hópa, félagasamtaka og stofnana.

Kynningarmál bæjarins gagnvart fjölmiðlum og almenningi falla undir starfssvið Akranesstofu og jafnframt umsjón með mótun stefnu í markaðs- og kynningarmálum á hverjum tíma.

Umsjón með efni og framsetningu þess á vefsíðu bæjarins, www.akranes.is, útgáfa sérrita um Akranes, samskipti við fjölmiðla og gerð kynningarefnis fellur undir starfssvið Akranesstofu. Þá hefur stofan yfirumsjón með framsetningu og þróun ýmissa annarra vefsvæða á vegum bæjarins.

Akranesstofa heldur úti sérstökum upplýsingavef fyrir gesti og ferðamenn, www.visitakranes.is og einnig vef Írskra daga, www.irskirdagar.is. Stofan er einnig til ráðgjafar um alla grunnþætti ferðaþjónustu, hefur umsjón með tjaldstæði bæjarins, rekstri upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn og aðstoðar við móttöku gesta á vegum bæjarfélagsins.

Verkefnastjóri Akranesstofu er Tómas Guðmundsson.  

Smelltu hér til að skoða upplýsingaritið "Hvað gerir Akranesstofa eiginlega?" um hlutverk og verkefni á vegum Akranesstofu.

Akranesstofa

Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar

Stillholti 16-18, 1. hæð

300 Akranesi

Beinn sími: 433 1060

Netfang: tomas.gudmundsson hjá akranes.is.

Vefir: www.akranes.is

          www.visitakranes.is

          www.irskirdagar.is

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008