ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Atvinna :: Þróun og ráðgjöf samband sveitarfélaga á Vesturl.
Prenta vefsíðu

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)  

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa verið starfrækt frá árinu 1969.

Markmið SSV er m.a. að vinna að hagsmunum sveitarfélaganna á Vesturlandi, einkum í atvinnu-, efnahags, mennta-, skipulags-, samgöngu- og félagsmálum, efla samstarf sveitarfélaganna og auka kynningu sveitarstjórnarmanna og styrkja þjóðfélagslega aðstöðu landshlutans. Samtökunum er ætlað að starfa í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við verður komið.

SSV rekur ráðgjafa- og þróunardeild, samkvæmt samningi við Byggðastofnun, en markmið þessa samstarfs er að stuðla að jákvæðri þróun atvinnulífs á starfssvæði félagsins, bæta almenn búsetuskilyrði á starfssvæði félagsins og byggja upp og miðla þekkingu, reynslu og hæfni á sviði atvinnu- og byggðaþróunar milli Byggðastofnunar og SSV.

Eitt af hlutverkum þessa samstarfs er einnig að stuðla að því að Byggðastofnun og aðrar stofnanir í stoðkerfi atvinnuþróunar hafi sem öflugastan samstarfsaðila á  starfssvæði félagsins (sjá samkomulag um atvinnuráðgjöf).
 

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

Bjarnabraut 8

310 Borgarnesi

Sími: 437-1318

Netfang: ssv hjá ssv.is

Vefur: www.ssv.is


 

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008