Félagsþjónusta Akraneskaupstaðar
Félagsþjónusta Akraneskaupstaðar fer með þá málaflokka er lúta að félagslegri þjónustu við íbúa á Akranesi. Innan sviðsins starfar sérstök ráðgjafardeild sem, eins og nafnið ber með sér, er fólki til ráðgjafar og tekur til meðferðar ýmis mál sem tengjast umhverfi og aðstæðum einstaklinga og fjölskyldna á Akranesi.
Helstu verkefni ráðgjafardeildar eru:
Fjárhagsaðstoð
Fjárhagsaðstoð er til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa ónógar tekjur sér til framfærslu og geta ekki séð fyrir sér og sínum sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglur um fjárhagsaðstoð samþykkt á Akranesi 27. apríl 2010. Fjárhagsaðstoð er einnig veitt þar sem löggjöf mælir fyrir um aðgerðir, sem hafa í för með sér fjárútlát t.d. ákvæði barnaverndarlaga nr. 80/2002 VI. og XII. kafla.
Barnavernd (sjá erindisbréf fyrir barnaverndarnefnd)
Að barnavernd er unnið samkvæmt lögum um vernd barna og ungmenna nr. 80/2002. Markmið barnaverndar er að tryggja börnum og ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði. Það er gert með því að styrkja uppeldishlutverk fjölskyldunnar og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Með börnum er átt við einstakling innan 18 ára aldurs.
Forsjármál
Unnið skv. Barnalögum nr. 20/1992. Málin berast frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sýslumannsembættum, dómstólum og er þá verið að óska eftir umsögn félagsmálaráðs(barnaverndarnefndar).
Umgengnisréttarmál
Unnið skv. Barnalögum nr.20/1992. Málin berast frá sýslumönnum og dómstólum þar sem óskað er eftir umsögn og eða vinnu við að koma á samkomulagi. Einnig beiðnir um ráðgjöf frá foreldrunum sjálfum til þess m.a. að reyna að fyrirbyggja deilur.
Ættleiðingarmál
Unnið skv. lögum um ættleiðingu nr. 130/1999. Málin berast frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Gera þarf mjög nákvæma greinargerð um hagi væntanlegra kjörforeldra og hæfni þeirra til að taka að sér kjörbarn. Þetta á við bæði hvað varðar ættleiðingar erlendis frá og ættleiðingar stjúpbarna.
Fósturmál
Unnið skv. reglugerð um ráðstöfun barna í fóstur nr. 532/1996. Starfsmenn Félagsþjónustu annast málefni barna sem fara í varanlegt fóstur þar til forsjárskyldur falla niður skv. lögum. Gerð er úttekt á hæfni og högum þeirra sem óska eftir að gerast fósturforeldrar.
Liðveisla
Unnið skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar- og félagslífs. Umsókn um liðveislu kemur frá hinum fatlaða sjálfum, aðstandendum eða svæðisskrifstofu Vesturlands.
Málefni fatlaðra - Sjá frekari upplýsingar hér
Málaflokkur fatlaðra fluttist frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011. Akraneskaupstaður tók þá við þjónustu og rekstri eftirfarandi þjónustuþátta:
- Sambýlið að Vesturgötu
- Sambýlið að Laugarbraut
- Fjöliðjan, vinnu- og hæfingarstaður Akranesi og Borgarnesi
- Frekari liðveisla við fatlað fólk, margháttuð aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs
- Ráðgjöf og aðstoð við fatlað fólk, foreldra fatlaðra barna og ungmenna og aðstandendur til viðbótar við það sem fyrir er hjá félagsþjónustunni
- Stuðningsfjölskyldur
- Skammtímavistun í samvinnu við Borgarbyggð/þjónustusvæðið
Ferðaþjónusta fatlaðra
Á Akranesi er rekin ferðaþjónusta fyrir fatlaða frá Höfða - hjúkrunar- og dvalarheimili. Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð fyrir þá fatlaða sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki til að geta stundað atvinnu, hæfingu, skóla eða farið til læknis. Félagsmálastjóri úrskurðar um þá einstaklinga sem eiga rétt á þjónustu.
Áfengis- og vímuvarnir
Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 setja ábyrgð á herðar sveitarfélögum varðandi aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur, sem eiga í erfiðleikum vegna áfengis- og vímuefnaneyslu. Í þessu felst m.a. aðstoð við einstaklinga sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða í samvinnu við aðila sem vinna að vímuvarnamálum og ráðgjöf og leitarstarf meðal unglinga. Félagsmálastjóri og framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu hafa með sér samstarf varðandi vímuvarnir.
Húsnæðismál
Samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 100/1994, lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og húsaleigulögum nr. 36/ 1997 veita starfsmenn Félagsþjónustu fólki ráðgjöf og alhliða upplýsingar um húsnæðismál og húsaleigusamninga. Umsýsla á félagslegu húsnæði, úthlutun leiguíbúða í eigu bæjarins og greiðsla húsaleigubóta.
Hægt er að panta viðtalstíma hjá Félagsþjónustu hjá þjónustuveri Akraneskaupstaðar í síma 433 1000. Starfsmenn taka einnig við barnaverndartilkynningum á skrifstofutíma í síma 433 1000. Utan þess tíma er bent á neyðarlínuna 1-1-2 þar sem hægt er að koma á framfæri barnaverndartilkynningum.
Starfsmenn Félagsþjónustu eru:
| Sveinborg Kristjánsdóttir |
félagsmálastjóri |
sveinborg.kristjansdottir hjá akranes.is |
| Ingibjörg Gunnarsdóttir |
yfirfélagsráðgjafi |
ingibjorg.gunnarsdottir hjá akranes.is |
| Hrefna Rún Ákadóttir |
félagsráðgjafi |
hrefna.run.akadottir hjá akranes.is |
| Ragna Guðbrandsdóttir |
félagsráðgjafi |
ragna.gudbrandsdottir hjá akranes.is |
| Arnheiður Andrésdóttir |
ráðgjafaþroskaþjálfi |
arnheidur.andresdottir hjá akranes.is |
| Klara Bragadóttir |
sálfræðingur |
klara.bragadottir hjá akranes.is |
| Helga Björk Bjarnadóttir |
forstöðumaður búsetuþjónustu |
helga.bjork.bjarnadottir hjá akranes.is |
Stillholti 16-18
300 Akranesi
sími: 433 1000
fax: 433 1090
Vefur: www.akranes.is