Unnið skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar- og félagslífs. Umsókn um liðveislu kemur frá hinum fatlaða sjálfum, aðstandendum eða félagsþjónustu Akraneskaupstaðar.
Sjá reglur um liðveislu á Akranesi