Öryrkjar
Félagsleg heimaþjónusta
Þjónusta við öryrkja og aldraða íbúa á Akranesi miðar að því að þeir geti búið eins lengi og unnt er við eðlilegt heimilislíf. Heimaþjónusta er veitt eftir mati sem unnið er af öldrunarfulltrúa í samstarfi við hinn aldraða, hinn fatlaða, sjúkrahús, heilsugæslu eða aðstandendur viðkomandi.
Heimsending matar
Öryrkjar og aldraðir eiga þess kost að fá heimsendan mat, eina máltíð á dag, og er það í samvinnu við Dvalarheimilið Höfða.
Félags- og tómstundastarf aldraðra og öryrkja
Félags- og tómstundastarf er starfrækt 11 mánuði ársins þrisvar sinnum í viku að Kirkjubraut 40.
Samþætting félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar
Náið samstarf er við heilsugæslu varðandi þá einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu. Skipulagning er í höndum öldrunarfulltrúa og deildarstjóra heimahjúkrunar.