Leikskólar
Undir Fjölskyldustofu heyra grunnskólar, leikskólar, tónlistarskóli, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál ásamt forvörnum svo og félagsþjónusta.
Á Akranesi starfa 4 leikskólar.
Umsóknir um leikskóla er hægt að nálgast á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar
Garðasel er fjögurra deilda leikskóli staðsettur að Lerkigrund 9. Garðasel er heilsuleikskóli og er hann aðili að samtökum heilsuleikskóla á Íslandi. Leikskólastjóri er Ingunn Ríkharðsdóttir. Heimasíða leikskólans er www.gardasel.is
Teigasel er þriggja deilda leikskóli staðsettur að Laugarbraut 20. Teigasel leggur áherslu á að vinna með stærðfræði og stærðfræðihugtök í sínu starfi. Leikskólastjóri er Margrét Þóra Jónsdóttir. Heimasíða leikskólans er www.teigasel.is
Vallarsel er sex deilda leikskóli staðsettur við Skarðsbraut 6. Vallarsel leggur áherslu á tónlist í uppeldisstarfi sínu. Leikskólastjóri er Brynhildur Björg Jónsdóttir. Heimasíða leikskólans er http://vallarsel.is/
Akrasel er sex deilda leikskóli staðsettur við Ketilsflöt 2. Akrasel tók til starfa í ágúst 2008 og nú eru starfræktar fimm deildir. Akrasel leggur áherslu á umhverfismennt, jóga og hollt mataræði. Leikskólastjóri er Anney Ágústsdóttir. Heimasíða leikskólans er www.akrasel.is
Framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu er Helga Gunnarsdóttir, helga.gunnarsdottir hjá akranes.is
Innritun er í höndum Svölu Hreinsdóttur verkefnisstjóra, svala.hreinsdottir hjá akranes.is