Þjónusta Akraneskaupstaðar við fatlaða.
Þann 1. janúar 2011 tóku sveitarfélög við þjónustu við fatlað fólk. Akraneskaupstaður tók þá við þjónustu og rekstri eftirfarandi þjónustuþátta:
- Sambýlið að Vesturgötu
- Sambýlið að Laugarbraut
- Fjöliðjan, vinnu- og hæfingarstaður Akranesi og Borgarnesi
- Frekari liðveisla við fatlað fólk, margháttuð aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs
- Ráðgjöf og aðstoð við fatlað fólk, foreldra fatlaðra barna og ungmenna og aðstandendur til viðbótar við það sem fyrir er hjá félagsþjónustunni
- Stuðningsfjölskyldur
- Skammtímavistun í samvinnu við Borgarbyggð/þjónustusvæðið
- Þjónusta við Hvalfjarðarsveit. Akraneskaupstaður veitir íbúum Hvalfjarðarsveitar þá þjónustu sem fellur undir gr. 5.1 og 5.2. í samningi um sameiginlegt þjónustusvæði Vesturlands um þjónustu við fatlaða. Ákvæði þess samnings gilda um þjónustuna eftir því sem við á. Samstarf er milli félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar og starfsmanna félagsþjónustu Akraneskaupstaðar sem sjá um þjónustu við fatlaða. Samvinna er um þá þjónustu sem fötluðum íbúum Hvalfjarðarsveitar stendur til boða skv. 1. gr. samnings milli aðila.
Eitt af markmiðum tilfærslu þjónustunnar frá ríki til sveitarfélaga er að efla þá félagsþjónustu sem fyrir er í sveitarfélaginu. Á Akranesi er starfandi félagsþjónusta og hefur hún eflst með auknum verkefnum í þjónustu við fatlað fólk. Tveir starfsmenn voru ráðnir til starfa við félagsþjónustuna sem hafa reynslu af þjónustu við fatlað fólk, foreldra og aðstandendur þeirra en það eru þær Arnheiður Andrésdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og Klara Bragadóttir sálfræðingur. Auk þeirra er Helga Björk Bjarnadóttir, forstöðumaður búsetuþjónustu. Þessir starfsmenn eru með aðstöðu á bæjarskrifstofunni að Stillholti 16-18, þriðju hæð.
Eitt þjónustusvæði á Vesturlandi
Akraneskaupstaður hefur skrifað undir samkomulag um að mynda eitt þjónustusvæði á Vesturlandi um þjónustu við fatlaða. Í þessu samkomulagi felst að þrjú félagsþjónustusvæði á Vesturlandi mynda grunneiningu þjónustusvæðisins. Þessi félagsþjónustusvæði eru félagsþjónusta Akraneskaupstaðar, félagsþjónusta Borgarbyggðar og skóla- og félagsþjónusta Snæfellinga.
Einstaklingur sem á lögheimili á Akranesi sækir þjónustu til félagsþjónustu Akraneskaupstaðar.
Nánari upplýsingar um málefni fatlaðra hjá Félagsþjónustu Akraneskaupstaðar veita:
Fjölskyldustofa leggur metnað sinn í að sinna málefnum fatlaðra af alúð í samvinnu við notendur þjónustunnar og foreldra og forráðamenn fatlaðra barna og ungmenna.
Sjá áhugaverðar síður og upplýsingar vegna þjónustunnar:
Undirbúningur hjá Akraneskaupstað vegna tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélags hófst haustið 2009. Starfshópur vann að undirbúningi frá hausti 2009 til ágústmánaðar 2010. Í honum sátu: Eydís Aðalbjörnsdóttir, formaður, Guðmundur Páll Jónsson, Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri, Svala Hreinsdóttir verkefnisstjóri og Ruth Rauterberg þroskaþjálfi: