Niðurgreiðslur vegna dvalar barns hjá dagforeldri.
Niðurgreiðslur vegna dvalar barns hjá dagforeldri eru greiddar foreldrum með lögheimili á Akranesi. Foreldrar í sambúð fá greitt frá níu mánaða aldri barns, en einstæðir foreldrar frá sex mánaða aldri barns.
Þeir foreldrar sem kaupa vistun hjá dagforeldrum í 4 - 8 klukkustundir á dag fá greiðslu sem nemur kr. 5000,- fyrir hverja klukkustund og getur greiðslan hæst orðið kr. 40.000,- á mánuði.
Eldri reglur um umönnunargreiðslur falla niður frá og með 31. mars 2011
Sjá reglur um niðurgreiðslur hér fyrir neðan:
Reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum
Reglur Akraneskaupstaðar er varða daggæslu í heimahúsi
Reglur Akraneskaupstaðar varðandi niðurgreiðslur vegna dvalar barns hjá dagforeldri
Sækja umsóknareyðublað vegna niðurgreiðslna
Nánari upplýsingar:
Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar
Sigrún Gísladóttir
Netfang: sigrun.gisladottir hjá akranes.is
Sími: 433 1000