Forvarnir
Forvarnarstarf í félagsmiðstöðvum
Hlutverk félagsmiðstöðva er að stuðla að jákvæðum þroska unglinga og gera þau sjálfstæðari, bæði í verki og félagslegum samskiptum og gera þau hæfari til að takast á við lífið. Markmið Arnardals er að bjóða upp á viðurkennt tómstundastarf, forvarnir, fræðslu og örvun til félagsþroska og jákvæðra samskipta. Þessir áhersluþættir birtast með beinum eða óbeinum hætti í starfseminni og liggja til grundvallar því tómstundastarfi sem unglingar og starfsfólk Arnardals vinna að. Allt starf í félagsmiðstöð er forvarnastarf hvort heldur sem er í gegnum leik eða skipulögð forvarnaverkefni. Leitarstarf er einnig mikilvægur þáttur í starfsemi félagsmiðstöðva en þar er skimað eftir hverskonar áhættuhegðun. Til þess að ná sem bestum árangri þarf starfsfólk félagsmiðstöðvanna í góðu sambandi við foreldra, skóla og alla þá er vinna á vettvangi frítímans.
Forvarnarfulltrúi
Meginviðfangsefni forvarnafulltrúa er að vinna að hvers konar forvörnum meðal barna og unglinga á Akranesi. Hlutverk hans er að skipuleggja fræðslu og bregðast við einstökum málum sem snerta börn og unglinga. Mikil áhersla er lögð á öflugt samstarf við lögreglu, skóla, félagsmiðstöðvar, félagsþjónustuna og foreldrafélög í bænum.
Verkefnisstjóri æskulýðs- og forvarnarmál sinnir einnig forvarnarmálum í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Verkefnin eru afar fjölbreytt. Auk þess að hafa reglulega viðtalstíma og ráðgjöf er starf með forvarnarhópi, upplýsingamiðlun til nemenda á vef eða í tölvupósti, fræðsla um forvarnir, að bjóða utanaðkomandi aðilum að halda fræðslu fyrir nemendur, fylgja eftir ábendingum um neyslu, eftirlit á skólaskemmtunum, fylgjast með nemendum sem eru í áhættu, fundir með nemendum, kennurum og foreldrum, samstarf við nemendafélög og félagsmálafulltrúa um skipulagningu og framkvæmd félagsstarfs, samstarf við aðra forvarnarfulltrúa, lögreglu og Jafningjafræðslu svo eitthvað sé nefnt.
Foreldrarölt
Tilgangurinn með foreldrarölti er að varna því að unglingar lendi í vanda og koma í veg fyrir hópamyndanir eftir löglegan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem unglingar hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Með þessu minnkum við líkurnar á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða. Slík nærvera gefur unglingunum líka tækifæri til að leita aðstoðar fullorðinna ef á þarf að halda. Margir foreldrar hugsa sem svo: Barnið mitt er ekki úti á kvöldin. Ég sé um minn ungling og af hverju ætti ég að vera að eyða tíma mínum í að passa annarra manna börn? Við þessu er einfalt svar: Með því hefur þú áhrif á það félagslega umhverfi sem þú og barnið þitt býr við. Því færri sem nota vímuefni, eru lagðir í einelti eða beittir ofbeldi af öðru tagi, því betra og öruggara er það umhverfi sem unglingurinn þinn býr við. Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi, hættum þess og hvar unglingar geta haft athvarf til neyslu óæskilegra efna og hópamyndunar. Lögreglan á Akranesi er sannfærð um að foreldraröltið hafi mikil og góð jákvæð áhrif.
Foreldrar og forvarnir
Börn og ungmenni eyða stórum hluta úr deginum á skólabekk. Þar af leiðandi er skólinn afar mikilvægur hlekkur í öflugu forvarnastarfi. Engu að síður eru það foreldrar sem eru mikilvægustu forvarnafulltrúar barna og unglinga. Því meiri tíma sem þú verð með barninu þínu því betri yfirsýn hefur þú yfir athafnir þess. Rannsóknir hafa sýnt að börn og unglingar sem eiga í sterkum og jákvæðum tengslum við foreldra sína eru alla jafna líklegri til að ganga betur í skóla og eru líklegri til að standast neikvæðan hópþrýsting jafnaldranna. Þannig hefur eftirlit foreldra með unglingum jákvæð áhrif á lífstíl þeirra og dregur úr líkum á því að vímuefnanotkun verði hluti af lífsmynstri þeirra. Samstarf við aðra foreldra er einnig ákaflega mkilvægt. Foreldrar eiga að leggja sig fram um að kynnast vinum barna sinna og foreldrum þeirra og vera þannig hluti af því samfélagi sem barnið lifir í. Einn mikilvægur þáttur í foreldrastarfi er foreldraröltið sem hefur ótvírætt sannað gildi sitt. Þar kynnast foreldrar innbyrðis, samtakamáttur eykst og foreldrar geta styrkt hvert annað í uppeldishlutverkinu. Foreldrar hafa spurt sig af hverju þeir ættu að fara á foreldrarölt þegar þeirra barn er heima. Til er máltæki sem segir að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Við búum í samfélagi þar sem okkur er ekki sama um náungann. Til eru börn sem eiga ekki foreldra sem geta veitt þeim umhyggju og aðhald. Þannig er það skylda okkar að hugsa lengra og jafnvel stundum að gerast foreldri annarra barna af og til. Aðrir foreldrar hafa sinnt okkar börnum og unnið fyrir þau í gegnum íþróttastarf, sem bekkjafulltrúar, sem fulltrúar í foreldraráði og foreldrafélagi skólans.
Uppeldi er samvinnuverkefni þar sem umhyggja, aðhald og eftirlit skipta sköpum.
Arnardalur
Heiðrún Janusardóttir, verkefnisstjóri æskulýðs- og forvarnarmála
Þjóðbraut 13 (gamli tónlistarskólinn)
Sími: 433 1250 og 867 1075
Netfang: heidrun.janusardottir hjá akranes.is
Vefur: www.akranes.is
Viðtalstímar í FVA eru á miðvikudögum kl 13:00-14:30.