ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?

Fasteignaskráning

Samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 skal Fasteignaskrá annast rekstur gagna- og upplýsingakerfis er nefnist Fasteignaskrá.
Í Fasteignaskrá skal skrá allar fasteignir í landinu og er hún grundvöllur skráningar fasteigna, þinglýsingabókar, mats fasteigna og húsaskrár Þjóðskrár Íslands .

Byggingarfulltrúi er ábyrgur fyrir að Fasteignaskrá berist upplýsingar um lönd og lóðir og breytingar á þeim, svo og um öll mannvirki, sem gerð eru í Akraneskaupstað og um breytingar á þeim og eyðingu þeirra. Stærðarskráning mannvirkja er sett fram í skráningartöflum.

Ennfremur tilkynnir byggingarfulltrúi um framvindu byggingarstiga svo og eigendaskráningu nýrra fasteigna.

Byggingarstjóra er skylt að tilkynna til byggingarfulltrúa þegar bygging er fokheld.

Byggingarfulltrúa er einhliða heimilt að tilkynna Fasteignaskrá þegar bygging er fokheld vanræki byggingarstjóri skyldur sínar.

Fasteignamat

Samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 metur Fasteignaskrá lóðir, lönd og mannvirki fasteignamati og skráir það í Fasteignaskrá.

Lóðir eru metnar til fasteignamats við skráningu þeirra í Fasteignaskrá.

Mannvirki eru fyrst metin fasteignamati, án skoðunar, þegar hús eru fokheld.

Mannvirki eru metin fasteignamati, með skoðun, þegar hús eru tekin í notkun og þar til þau eru fullgerð.

 

 

 

 

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008