ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?

Leiðbeiningar til lóðarhafa um framgang og vinnuferli

við uppbyggingu húsa

Eftir úthlutun lóða fer ferli í gang hjá einstaklingum sem fólk er ekki að gera oft og sumir í fyrsta og síðasta skipti að byggja sér hús.  Venjulegt fólk er ekki að standa í byggingum ár eftir ár, sem almennt er ekki að vinna í svona málum.  Byggingarstjórar eiga að vera leiðbeinandi fyrir fólk sem eru í svona framkvæmdum.

Með þessu leiðbeiningarriti er reynt að kynna það fyrir því fólki sem er að koma að svona málum í fyrsta skipti hver framgangsmáti og hvaða vinnureglur eru í gangi við uppbyggingu húss frá afhendingu lóðar til fullfrágengins húss.

Hér fyrir neðan eru byggingarskilmálar og deiliskipulagskort, umsóknareyðublöð fyrir byggingarleyfi, uppáskriftar meistara- og byggingastjóraeyðublöð, lóðarblað með inntökum lagna OR ásamt gátlisti aðalhönnuða.

Eftir að lóðarhafi er komin með öll plögg um lóðarúthlutunina er farið í að leita að aðalhönnuði hússins. Aðalhönnuður hússins er jafnframt samræmingaraðili á öllum frágangi teikninga, og  undirritar seinna allar verkteikningar og vottar að þær séu í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti hússins. Við hönnun húss þarf að taka tillit hvernig lóð snýr m.t.t sólar og fl. Gott er að vera búin að gera þarfagreiningu um  t.d. stærð hússins og byggingarefni og fl.

Þegar búið er að hanna húsið og komin sátt um fyrirkomulag fer eftirfarandi ferli í gang:

1.  Leggja inn byggingarleyfisumsókn og teikningar í þremur eintökum. (Byggingarleyfisumsókn má finna á www.akranes.is)

2.  Byggingarfulltrúi fer yfir gögn m.t.t. byggingarreglugerðar og skipulags. Ef athugasemdir eru, er haft samband við hönnuði og þeir beðnir um leiðréttingu á uppdráttum.

3.  Byggingarleyfi samþykkt.

4.  Framkvæmdarleyfi fæst við greiðslu gjalda og framlagða byggingarstjóra- og meistarablöð.(Byggingastjóra- og meistarablað má finna á www.akranes.is) Athuga þarf hvort meistari og byggingastjóri eru með löggildingu hér eða landsréttindi ásamt tryggingu.

5.  Byggingafulltrúi biður ákveðna verkfræðistofu um útmælingu fyrir greftri sé  lið númer 4 fullnægt.

6.  Eftir uppgröft og fyllingu í rétta hæð er gert plötupróf á fyllingunni. Það próf er fyrsta úttekt í húsinu og er framkvæmd af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.

7.  Standist kröfur um plötupróf er komin heimild til að gera útmælingu númer 2. Sem er nákvæmnismæling á útlínum hússins. Áður en til mælinga kemur skal vera búið að setja upp slár. Hér þurfa allar verkteikningar að vera komnar inn til byggingarfulltrúa. Allar verkteikningar eiga að vera stimplaðar frá bygginarfulltrúa á byggingastað.

8.  Úttekt sökkla. Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum. 

8.  Úttekt skolps.   Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum

10. Úttekt plötu og ef neyslu- og hitalagnir eru þar líka innsteyptar. Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum

11.  Úttekt burðarvirkis veggja og þaks. Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum.

12.  Fokheldisúttekt. Húsið fullfrágengið að utan og lóð grófjöfnuð. Fyrir fokheldisúttekt þurfa allar teikningar að verða komnar inn til byggingafulltrúa einnig rafmagnsteikningar. Einnig þarf að koma yfirlýsing tryggingarfélags um að húsið sé brunatryggt. Sé hús forbyggt einingarhús (timbur eða steypa) skal vera komið inn með vottun (umsögn) frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands um gæði hússins.  Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum við fokheldisúttekt.

13.  Úttekt á einangrun og frágangi rakasperru og milliveggjar bílskúrs og íbúðar sé svoleiðis til staðar.  Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum.

14.  Úttekt fyrir lókaúttektarvottorðs. Ætlast er til að byggingarstjóri sé á staðnum og einnig eigandi eða fulltrúi eiganda ásamt slökkviliðsstjóra. Fyrir útgáfu lokaúttektar þarf yfirlýsingu raflagnameistara um að frágangi sé lokið og búið að senda inn til neytendastofu. Yfirlýsingu pípulagningarmeistara um stillingu kerfa sé lokið.  Yfirlýsingu Blikksmíðameistara um stillingu kerfa sé lokið sé það til staðar.

Allar aðaluppdráttarteikningar þurfa að skilast inn í tvíriti. Allar verkfræðiteikningar þurfa að skilast inn í tvíriti. Eigandi á að fá eitt sett til baka stimplað af byggingarfulltrúa og hafa á byggingarstað og sýna við úttektir. Allar verkteikningr skulu áritaðar af samræmingarhönnuði.

Byggingarstjóri ábyrgist að byggt sé eftir samþykktum teikningum.

Ábyrgð byggingastjóra er 5 ár eftir útgáfu lokaúttektarvottorðs.

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008