Landupplýsingakerfi
Heimasíða Landupplýsingakerfis
Hvað er Landupplýsingakerfi (LUKA)?
LUKA, landupplýsingakerfi Akraneskaupstaðar, er eins og nafnið bendir til kerfi þar sem skipulega er haldið, á tölvutæku formi, utan um ýmsar upplýsingar er varða rekstur kaupstaðarins. Akraneskaupstaður notar Microstation, og skyld forrit til reksturs LUKA-kerfisins. Þjónustuaðili er Ísgraf ehf.
Á síðunni er aðgangur að öllum uppdráttum íbúðarhúsa sem til eru í skjalasafni kaupstaðarins.
Notkun
Notkunin miðast aðallega við öflun upplýsinga sem tengjast, skipulags- og áætlanagerð ásamt margvíslegri hönnun.
Markmið
Að kerfið verði nýtanlegt almenningi gegnum internetið, að upplýsingar um veitulagnir, s.s. fjarskiptalagnir, rafmagn, fráveitu, heitt og kalt vatn verði einnig aðgengilegt. Samstarf er í gangi við eigendur umræddra veitna.
Umsjón og hönnun
Guðný J. Ólafsdóttir, netfang: gudny.olafsdottir hjá akranes.is
Þjónustuaðili: Ísgraf ehf. Netfang: isgraf hjá isgraf.is
og Loftmyndir ehf. Netfang: loftmyndir hjá loftmyndir.is
Veffang: www.loftmyndir.is
Hægt er að nálgast vefsíðu landupplýsingakerfisins hér