ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?

Umhverfismál á Akranesi

Skipulags- og umhverfisstofa  hefur umsjón með umhverfismálum Akraneskaupstaðar þ.m.t. skipulagi á sviði umhverfismála í bænum.

Framkvæmdastofa sér um  framkvæmd og umsjón viðhaldsáætlanna opinna svæða, göngustíga, skógræktarsvæða, gróðursetningu og beitarlönd. 

Skipulags- og umhverfisnefnd er skipuð fimm aðalmönnum  og jafnmörgum til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefndin fer með yfirumsjón umhverfismála á Akranesi. Nefndin er bæjarstjórn einnig til ráðuneytis í umhverfismálum og tekur starfssvið nefndarinnar m.a. til náttúruverndar og varna gegn hvers kyns mengun, sbr. lög um náttúruvernd nr. 93/1996.

Nefndin fer með málefni sem snerta gróðurvernd, sbr. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965. Enn fremur skal nefndin annast veitingu viðurkenninga til einstaklinga og fyrirtækja fyrir snyrtilegt umhverfi og eru slíkar viðurkenningar veittar árlega. Nefndin kallar til ráðuneytis fulltrúa þeirra samtaka sem láta sig umhverfismál varða þegar veittar eru viðurkenningar.

 

Skipulags- og umhverfisstofa Akraneskaupstaðar

Stillholt 16-18, 1. hæð

300 Akranesi

Sími: 433 1000

Fax: 433 1090

Netfang: akranes hjá akranes.is

Vefur: www.akranes.is

Nánari upplýsingar um netföng og beina síma starfsfólks Skipulags- og umhverfisstofu má finna í skrá yfir starfsfólk Akraneskaupstaðar.

 

Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar

Stillholt 16-18

300 Akranesi

Sími: 433 1000

Fax: 433 1090

Netfang: akranes hjá akranes.is

Vefur: www.akranes.is

Nánari upplýsingar um netföng og beina síma starfsfólksFramkvæmdastofu má finna í skrá yfir starfsfólk Akraneskaupstaðar.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008